Allar fréttir verða á yourchessnews.com

Þar sem aðstæður hafa breyst mikið hjá umsjónarmanni þessarar síðu, sem og yourchessnews.com, hefur verið ákveðið að leggja þessa síðu niður. Amk í langan tíma. Á sama tíma verður lagður meiri kraftur í yourchessnews.com sem er nú rekin í breyttri mynd. Sú síða hefur nú tekið á sig endanlega mynd en þar er blandað saman fréttum, skákþjálfun og sögu auk athyglisverðra greina og viðtala.

Síðan þakkar fyrir mjög jákvæð viðbrögð á þeim tíma sem að hún var starfrækt. Auðvelt er viðurkenna það að þetta var erfið ákvörðun en vonandi fylgja traustir lesendur yourchessnews.com eftir í staðinn. Á yourchessnews.com verður hægt að kaupa vörur frá Amazon.com sem og góðri skákverslun, sjá á hægri hlið síðunnar.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Íslandsmót Skákfélaga hefst í kvöld

Íslandsmót skákfélaga hefst í kvöld. Keppnin fer fram í Rimaskóla og má búast við afar spennandi keppni í flestum deildum. Reikna má með því að breiddin verði með mesta móti í 1 deild og hörð keppni verði á milli 4 liða um titilinn eftirsótta. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

111 ára afmælishóf T.R. í kvöld – Anatoly Karpov heiðursgestur

Taflfélag Reykjavíkur hélt í dag upp á 111 ára afmælið með afmæliskaffiboði fyrir boðsgesti í félagsheimili T.R. Klukkan 17 byrjuðu boðsgestir að streyma að og eftirvænting var í loftinu, því von var á heiðursgesti afmælisins, Anatoly Karpov, fyrrverandi heimsmeistara í skák. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

Fimmtudagurinn þrettándi – stórmót í sal TR

Í tilefni Alþjóðlegs geðheilbrigðisdags verður blásið til móts í sal TR við Faxafen klukkan 19:30, fimmtudaginn 13. okt. Skráning hefst strax uppúr klukkan 19:00.  Taflfélagið Hellir,  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélag Vinjar sameina krafta sína, líkt og í fyrra og þá varð úr magnað kvöld með 79 þátttakendum. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Myndir frá afmæliskaffi TR og komu Karpovs til landsins

This gallery contains 69 photos.

 

More Galleries | Leave a comment

Skákmót öðlinga 2011 er hafið

Sigurður H Jónsson (skak.is)

Sigurður H Jónsson (skak.is)

Skákmót öðlinga er hafið og lauk 1 umferð í kvöld. Mótið er bæði fjölmennt og sterkt og verður án efa gaman að fylgjast með því. Nokkuð var um óvænt úrslit í 1 umferð. Ma vann Agnar Olsen Hrafn Loftsson með svörtu mönnunum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Ný skákfréttasíða

Skákfréttir

Skákfréttir

Yourchessnews.com/skakfrettir er ný skáksíða sem mun fjalla um allt sem er skákinni viðkomandi. Fréttir, umfjöllun um mót, bækur og tölvuforrit og hvað eina. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Smári Sigurðsson Héraðsmeistari HSÞ í skák árið 2011

Smári Sigurðsson (Godinn.blog.is)

Smári Sigurðsson (Godinn.blog.is)

Smári Sigurðsson varð í kvöld Héraðsmeistari HSÞ í skák árið 2011. Smári fékk 6 vinninga af 7 mögulegum.

Smári gerði jafntefli við Pétur Gíslason og Benedikt Þór Jóhannsson en vann aðrar skákir. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hvernig á að máta með biskup og riddara á móti kóng?

Það vill vefjast fyrir mörgum hvernig á að máta með riddara og biskup gegn kóng. Hér er mjög gott myndband þar sem þetta atriði er útskýrt. Continue reading

Posted in Skákefni fyrir byrjendur, Skákmyndbönd, Skákþjálfun | 2 Comments

Saga Paul Keres

Paul Keres var meðal sterkustu skákmanna heims á tímanum milli 1930 til 1960. Margir eru þeirrar skoðanar að hann sé sterkasti skákmaður þeirra sem ekki hafa orðið heimsmeistarar. Vann 9 heimsmeistara og er líklega sá eini sem hefur afrekað það. Hér er hans saga! Continue reading

Posted in Skákmenn, Skákmyndbönd, skáksögumolar | Tagged | Leave a comment

7 skákmenn efstir og jafnir á Skákmóti öðlinga eftir 2 umferðir.

Kristján Guðmundsson (perlukafarinn.is)

Kristján Guðmundsson (perlukafarinn.is)

2 umferð í Skákmóti öðlinga fór fram í kvöld. Eftir hana eru 7 skákmenn efstir og jafnir, þeir Kristján Guðmundsson, Björn Þorsteinsson, Bragi Halldórsson, Jóhann H. Ragnarsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Þorvaldsson og Halldór Pálsson. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , | Leave a comment

Jón Úlfljótsson sigraði á æsispennandi fimmtudagsmóti TR í kvöld!

Jón Úlfljótsson (taflfelag.is)

Jón Úlfljótsson (taflfelag.is)

Jón Úlfljótsson sigraði á spennandi  fimmtudagsmóti sem fram fór í kvöld.
Fyrir síðustu umferð á fimmtudagsmótinu í TR í  kvöld voru einir fimm í þéttum hóp og áttu næstum allir möguleika á sigri. Að lokum stóð Jón Úlfljótsson uppi sem sigurvegari með jafn marga vinninga og Stefán Þór Sigurjónsson en hálfu stigi meira! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , | Leave a comment

Sindri Guðjónsson kominn aftur í TG.

Sindri Gujónsson (godinn.blog.is)

Sindri Gujónsson (godinn.blog.is)

Sindri Guðjónsson hefur skipt úr Goðanum til Taflfélag Garðabæjar. En TG er uppeldisfélag hans og því má segja að hann sé að koma heim að nýju. Sindri stóð sig vel undir merkjum Goðans og mun örugglega nýtast TG vel í komandi baráttu.

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged , , | Leave a comment

Skákþing Íslands – Áskorendaflokkur

Skáksamband ÍslandsStjórn Skáksambands Íslands hefur ákveðið að keppni í áskorendaflokki 2011 fari fram dagana 15.  – 24. apríl  n.k. . Mótið mun fara fram í Faxafeni 12, Reykjavík.   Efstu tvö sætin gefa föst sæti í Landsliðsflokki 2012. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Zhao og Ding eru efstir á Kínverska Skákþinginu

GM Wang Yue (wikipedia.org)

GM_Wang_Yue (wikipedia.org)

Kínverska meistaramótið er nú í fullum gangi. En það fer fram á milli  30.3 og 10.4.

Wang Yue er stigahæstur keppanda með 2734 stig  en þetta eru keppendurnir í opna mótinu: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , | Leave a comment

Vormót Taflfélags Vestmannaeyja hófst í dag

Björn Ívar Karlsson (skak.is)

Björn Ívar Karlsson (skak.is)

Fyrsta umferð Vormóts TV var tefld í dag. Einungis 10 keppendur skráðu sig og verður það að teljast frekar slök þátttaka. Ákveðið var því að fækka umferðum niður í 5 og verður einungis teflt á miðvikudögum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Önnur umferð í Vormóti Taflfélags Vestmannaeyja

Nökkvi Sverrisson (skak.is)

Nökkvi Sverrisson (skak.is)

Önnur umferð Vormóts Taflfélags Vestmannaeyja byrjaði í gærkvöldi.  Einni skák var frestað þar sem veikindi hrjá grunnskólabörn í Vestmannaeyjum þessa dagana. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Skákþing Norðlendinga fer fram 8.-10. apríl

Skákþing Norðlendinga 2011 verður haldið í Safnaðarheimili Siglufjarðarkirkju helgina 8.-10. apríl. Það er Skákfélag Siglufjarðar sem sér um mótshaldið.
Mótið er opið öllu skákáhugafólki. Continue reading

Posted in Skákmót | Tagged | Leave a comment

Næst síðustu umferð á Evrópumóti einstaklinga lokið

Bragi Þorfinnsson (skak.is)

Bragi Þorfinnsson (skak.is)

10 og næst síðasta umferðin á Evrópumóti einstaklinga fór fram í dag en mótið er haldið í Frakklandi.

SM Potkin Vladimir frá Rússlandi hefur verið magnaður á þessu móti og leitt það allann tímann fyrir utan eina umferð þar sem Vallejo Pons var hærri en hann á stigum! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged , , , , , , , , , , | Leave a comment

Hvernig byggir maður brú í hróksendatafli?

Björn Ívar Karlsson (skak.is)

Björn Ívar Karlsson (skak.is)

Björn Ívar Karlsson, einn sterkasti skákmaður Taflfélags Vestmannaeyjar gegnum tíðina, hefur búið til nokkur mjög góð kennslumyndbönd. Hann hefur veitt síðunni leyfi til að birta þau og verða þau sýnd hér á næstu dögum. Hér kemur fyrsta af þessum myndböndum. Continue reading

Posted in Skákefni fyrir byrjendur, Skákmyndbönd, Skákþjálfun | Tagged , | Leave a comment

Umfjöllun um fjarveru Héðins á MP Reykjavík open

SM Héðinn Steingrímsson (gmhedinn.blog.is)

SM Héðinn Steingrímsson (gmhedinn.blog.is)

Yourchessnews.com/skakfrettir hefur borist bréf frá SM Héðni Steingrímssyni þar sem hann óskar eftir því að síðan birti tilkynningu frá honum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged , | Leave a comment

Rimaskóli leiðir á Íslandsmóti barnaskólasveita

Íslandsmót barnaskólasveita fer fram um helgina.  41 sveit tekur þátt í mótinu en það er fækkun um 11 sveitir frá því í fyrra. en þá fór mótið fram á einum degi.  Sérstaka athygli vekur að einu fulltrúar landsbyggðarinnar eru sveitir frá Vestmannaeyjum. Væntanlega hefur þar tímasetning mótsins eitthvað að segja en fermingar eru um um þessa helgi. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Potkin Evrópumeistari einstaklinga

SM Potkin varð Evrópumeistari einstaklinga í dag eftir jafntefli gegn Judit Polgar. Þetta verður að teljast sanngjarn sigur því hann leiddi nánast allt mótið og telfdi virkilega vel að einni umferð undanskilinni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Sigurður Arnarson vann 15 mínútamót á Akureyri í dag

Í dag tefldu skákfélagsmenn 15 mínútna mót með 12 mínútna umhugsunartíma. Níu skákmenn mættu til leiks og tefldu einfalda umferð, allir við alla.
Leikar fóru þannig að Sigurður Arnarson sigraði örugglega með 7 vinninga af 8 mögulegum en hann hafði tryggt sér sigurinn þegar einni umferð var ólokið. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Paul Morphy: Mozart skákarinnar

Fáir skákmenn hafa verið jafn skemmtilegir sóknarskákmenn og Paul Morphy. Hann var almennt talinn heimsmeistari í skák um miðbik 19.aldar, en háði þó aldrei opinbert einvígi um titilinn. Hér kemur saga Paul Morphy! Continue reading

Posted in Skákmenn, skáksögumolar | Tagged , | Leave a comment

Rimaskóli vann Íslandsmót barnaskólasveita

41 sveit tók þátt í Íslandsmóti barnaskólasveita um helgina. En mótið fór fram í Rimaskóla. Mótið var núna í tvo daga en í fyrra fór það fram á einum degi. Þá tóku 52 sveitir þátt.

Mótið snerist fljótt upp í hörkukeppni milli Rimaskóla og Álfhólsskóla. Skólarnir mættust einmitt í síðustu umferð á laugardag, 5 umferð, og skildu jafnar eftir harða keppni.
Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Íslandsmót barnaskólasveita frá sjónarhorni Skákklúbbs Hofstaðarskóla

Það er ávallt gaman að fá mismunandi sjónarhorn á mót. Skákklúbbur Hofstaðarskóla hefur tekið saman þetta mót frá þeirra sjónarhorni í skemmtilegri grein sem kemur hér: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Yfirlýsing frá Skáksambandi Íslands vegna muna úr einvígi aldarinnar

Skáksamband Íslands harmar það að einstakir munir úr einvígi aldarinnar 1972 gangi kaupum og sölum og séu jafnvel seldir úr landi.  Að mati Skáksambandsins er hér um að ræða þjóðargersemar sem eiga að tilheyra íslensku þjóðinni og ættu að vera í varðveislu hjá til þess bærum aðila eins og t.d. Þjóðminjasafninu.  Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged , , | Leave a comment

Myndasyrpa frá Reykjavíkurmóti grunnskólasveita

This gallery contains 25 photos.

Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram í kvöld. Mótshaldari var Taflfélag Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundarráð Reykjavíkur. Sigurlaug R Friðþjófsdóttir, formaður Taflfélags Reykjavíkur, tók þær myndir sem birtast hér á síðunni:

More Galleries | Leave a comment

Rimaskóli Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2011

Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram í dag, 4. apríl, í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Skákmót þetta er samstarfsverkefni Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur og hefur verið haldið frá því á 8. áratug síðustu aldar. 19 sveitir frá tíu skólum borgarinnar kepptu að þessu sinni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , | Leave a comment

3 umferð í Öðlingamótinu klár

Tvær frestaðar skákir úr 2 umferð Skákmóts öðlinga fóru fram í kvöld. Nú liggur því fyrir pörun í 3. umferð sem fram fer á miðvikudagskvöld, kl. 19:30.
Röðun 3. umferðar: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Sjálftraust í skák

Stórmeistari kvenna L’Ami, Alina, eiginkona hollenska stórmeistarans Erwin l’Ami, heldur úti mjög skemmtilegri heimasíðu. Þar er mikið um fróðlegt efni en sérstaklega athygli yourchessnews.com/skakfrettir hefur vakið grein hennar um sjálfstraust í skák. Hún nálgast viðfangsefnið með öðrum hætti en oft gerist en engu að síður afar athyglisverðum. Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Vigfús Ó. Vigfússon sigraði með 6v af á hraðkvöldi Hellis

Vigfús Ó. Vigfússon sigraði með 6v í sjö skákum á hraðkvöldi Hellis sem fram fór 4. apríl sl. Vigfús tapaði ekki skák en gerði jafntefli við Jón Úlfljótsson og Sæbjörn Guðfinnsson í spennandi skákum þar sem mikið gekk á og hann náði jafntefli nánast fallinn á tíma í annarri skákinni og hinni náði hann að knýja fram jafntefli þótt hann væri fallinn. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Skákþing Norðlendinga 2011

Skákþing Norðlendinga fer fram á Siglufirði helgina 8.-10. apríl.

Skráðir keppendur á mótinu eru eftirfarandi samkvæmt nýjustu upplýsingum: Continue reading

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Kínverska meistaramótið 2011 langt komið.

7 umferðir eru núna búnar í Kínverska meistaramótinu. Í opna flokknum er Ding, Liren efstur með 5,5 v en Ni er aðeins rétt á eftir honum með 5 vinninga. Hou, Yifan er eina konan í mótinu og er hún með 4 vinninga sem stendur.  Í kvennaflokknum eru Zhang, Xiaowen  og Ju, Wenjun efstar og jafnar með 5,5 v.

Mótið hefur einkennst af mikilli baráttu. Lítið er um stutt jafntefli og skákir hafa farið í yfir Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , | Leave a comment

2 efstir og jafnir á Skákmóti öðlinga

2 skákmenn eru efstir og jafnir eftir 3 umferð á Skákmóti öðlinga, þeir Kristján Guðmundsson. Öfugt við 2 umferð voru sóknarskákir á flestum borðum í 3 umferð.  Á

fyrsta borði vann Kristján Guðmundsson núverandi öðlingameistara, Braga Halldórsson Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Elsa María Kristínardóttir sigraði örugglega á fimmtudagsmóti

Elsa María Kristínardóttir sigraði af nokkru öryggi á fimmtudagsmóti í gær. Helst fékk hún samkeppni framan af frá Tjörva Schiöth en eftir tap Tjörva í síðustu umferð í miklum tímahraksbarningi við Vigni Vatnar (sem átti 2 sekúndur eftir þegar Tjörvi féll) og sigur Elsu Maríu, varð hún 1½ fyrir ofan Tjörva sem hélt þó öðru sætinu þrátt fyrir tapið. Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , | Leave a comment

Páskaeggjamót Hellis

Páskaeggjamót Hellis verður haldið mánudaginn 11. apríl 2011, og hefst taflið kl. 17, þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Páskaeggjamótið kemur í stað mánudagsæfingar. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Frábært framtak hjá Skákfélagi Akureyrar

Skákfélag Akureyrar hefur tekið þann sið að fjalla um ákveðið skákefni á fræðilegum fyrirlestum sem haldnir eru einu sinni á mánuði. Virkilega gott framtak og greinilega vel að þeim staðið. Sigurður Arnarson heldur einn slíkan í kvöld sem ber heitið Peðakeðjur, gagn þeirra og hvernig ráðast ber gegn þeim. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákþjálfun | Tagged , | Leave a comment

Skákþing Norðlendinga er hafið

Fyrsta umferð í Skákþingi Norðlendinga hófst í kvöld. Mótið fer fram á Siglufirði og er ágætlega skipað. Eftir 2 umferðir eru 5 keppendur með fullt hús, þeir Davíð Kjartansson (Víkingaklúbbnum), Áskell Örn Kárason (SA), Tómas Veigar Sigurðsson ( SA), Sigurður H. Jónsson (Skákfélagi Reykjanesbæjar) og Sævar Bjarnason (TV).

Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Efstu borð með jafntefli á Skákþingi Norðlendinga

Enginn þeirra fimm sem efstir voru á Skákþingi Norðlendinga tókst að vinna sína skák í 3 umferð. Davíð og Sævar gerðu jafntefli sem og Áskell og Tómas. Sigurður tapaði hins vegar fyrir Birki svo að aftur eru fimm jafnir, nú með 2,5 v. Úrslitin urðu sem hér segir: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Jafntefli á 3 efstu borðunum á Skákþingi Norðlendinga!

4 umferð lauk með jafntefli á þremur efstu borðunum. Nú má segja að nýtt mót hefjist hvað það varðar að nú taka langar skákir við.

7 skákmenn eru efstir og jafnir með 3 vinninga. Þetta eru þeir Davíð Kjartansson, Sævar Bjarnason, Áskell Örn Kárason, Birkir Karl Sigurðsson, Tómas Veigar Sigurðsson, Sigurður H. Jónsson og Mikael Jóhann Karlsson. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Liren Ding er kínverskur meistari þrátt fyrir að ein umferð sé eftir.

Liren Ding hefur tryggt sér sigurinn á Kínverska meistaramótinu þrátt fyrir að ein umferð er eftir. Í kvennamótinu er hins vegar hörð keppni milli Zhang og Zhao en þær eru með 8 vinninga fyrir síðustu umferð á Kínverska meistaramótinu.

Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

NM stúlkna er hafið.

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

4 efstu eru farnir að skilja sig frá öðrum á Skákþingi Norðlendinga

Mjög hörð barátta einkennir Skákþing Norðlendinga. 4 skákmenn leiða mótið og eru nú komnir með vinningsforskot á þá sem eru í 5 – 12 sæti. Þetta eru þeir Davíð Kjartansson, Áskell Örn Kárason, Sævar Bjarnason og Tómas Veigar Sigurðsson. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Davíð einn efstur á Skákþingi Norðlendinga

Davíð Kjartansson er efstur fyrir síðustu umferð á Skákþingi Norðlendinga eftir mikilvægan sigur á Tómasi Veigari Sigurðssyni. Á sama tíma gerðu Sævar Bjarnason og Áskell Örn Kárason jafntefli. Davíð hefur því hálfan vinning á þá Sævar og Áskel fyrir síðustu umferð. En í 7 umferð mætir hann Páli Ágústi Jónssyni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Mikael Jóhann Karlsson er skólaskáksmeistari Akureyrar í eldri flokki!

Skólaskákmót Akureyrar í eldri flokki var háð 5. apríl. Keppendur voru 11 og tefldu 7 umferðir. Skólaskákmót Ak. Yngri flokkur 2011 478 Mikael Jóhann Karlsson, Brekkuskóla, vann enn eina ferðina og nú með fullu húsi, 7 vinningum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

3 umferð á Norðurlandamóti stúlkna

3 umferðir af 5 eru nú búnar á Norðurlandamóti stúlkna. Hægt er að skoða skákir mótsins úr fyrstu 2 umferðunum hér. Gengi íslensku stelpnanna hefur verið ágætt í  heildina séð. Staðan í mótinu kemur hér: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Jón Kristinn Þorgeirsson varð skólaskákmeistari Akureyrar þriðja árið í röð

Jón Kristinn Þorgeirsson, Lundarskóla, varð skólaskákmeistari Akureyrar þriðja árið í röð, þegar keppni í yngri flokki fór fram í gær. Algjörlega frábær árangur hjá þessum efnilega skákmanni.  Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Saga Nicolas Rossolimo

Nicolas Rossolimo er höfundur hins vinsæla 3. Bb5 í Sikileyjarvörn. Hann var fæddu í Kiev 28 febrúar 1910 en dó í New York 1975. Hann var útnefndur AM 1950 og SM 1953. Saga hans er athyglisverð og kemur hér: Continue reading

Posted in Skákmenn, skáksögumolar | Tagged | Leave a comment

Thailand Open 2011 hefst á morgun!

Thailand Open 2011 hefst á morgun, 11 apríl. Þetta hefur oftast verið skemmtilegt mót í gegnum tíðina. Telft er við góðar og flottar aðstæður eins og sjá má hér. Yourchessnews.com/skakfrettir mun fylgjast náið með mótinu auk þess sem yourchessnews.com mun einnig gera það. En síðan hefur fréttaritara á staðnum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Áskell Örn Kárason Norðurlandsmeistari 2011

Áskell Örn Kárason (SA) varð skákmeistari norðlendinga þegar hann sigraði á Skákþing norðlendinga sem lauk á Siglufirði í dag. Áskell fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Davíð Kjartansson (Víkingaklúbbnum) varð efstur á vinningum með 6 vinninga en þar sem Davíð er ekki með lögheimili á Norðurlandi fékk Áskell titilinn.
Þetta var annað árið í röð sem Áskell vinnur mótið. Sævar Bjarnason (TV) varð í 2.-3. sæti með 5,5 vinning. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Tagged , , , , | Leave a comment

Mótstaflan í Landliðsflokki er klár

Landsliðsflokkur á Skákþingi Íslands fer fram á Eiðum dagana 15 – 23. Keppendur á mótinu eru eftirfarandi:
Þátttakendur í mótinu eru eftirfarandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , , | Leave a comment

Metþátttaka í Thai Chess Open í Pattaya!

Meira en 200 keppendur taka þátt í opna Thai Chess Open 2011, sem hófst í dag á Dusit Thani Resort í Pattaya.

Öll athyglin er sterkasta skákmanni spánverja, Paco Vallejo Spánar og fyrrum keppanda í heimsmeistaraeinvígi, áskorendanum Nigel Short frá Englandi. Allir stórmeistararnir byrjuðu vel í mótinu og unnu sínar skákir í fyrstu umferð. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Röðun í 4 umferð Skákmóts öðlinga tilbúinn

Eiríkur Björnsson og Bjarni Hjartarsson gerðu jafntefli í frestaðri skák úr 3 umferð í Skákmóti öðlinga. Staðan í Skákmóti öðlinga eftir 3 umferðir er því þessi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

AM frá Hvíta Rússlandi gengur til liðs við TG

AM Vladimir Poley er genginn til liðs við TG (schacksnack.se)

AM Vladimir Poley er genginn til liðs við TG (schacksnack.se)

AlmenntVladimir Poley alþjóðlegur meistari frá Hvíta Rússlandi er genginn til liðs við TG. Hann heldur utan um  4springare.se skákklúbbinn sem sinnir kennslu fyrir börn og unglinga.

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged | Leave a comment

Íslandsmót barnaskólasveita frá sjónarhorni Taflfélags Vestmannaeyja

TV menn eru búnir að gera upp Íslandsmót Barnaskólasveita. Eins og margir aðrir minnast þeir á gallana við það að hafa mótið ekki á einum degi. Umfjöllun þeirra kemur hér: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Aðalfundur SÍ fer fram 28. maí

Aðalfundur SÍ mun fara fram laugardaginn 28. maí nk.  Fundarboð verður sent út 28. apríl og fyrir þann tíma þurfa lagabreytingatillögur að hafa borist skrifstofu SÍ.

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Hallgerður Þorsteinsdóttir Norðurlandameistari stúlkna!

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir varð í dag norðurlandameistari stúlkna með 4.5 vinninga af 5 mögulegum.  Hallgerður sigraði Amalie Lindeström frá Danmörku í lokaumferðinni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Myndir af íslensku keppendunum frá Norðurlandamóti stúlkna

Íslensku keppendurnir á Norðurlandamóti stúlkna stóðu sig í heildina mjög vel á mótinu. Hér koma myndir af þeim sem mótshaldarar tóku.

More Galleries | Leave a comment

Stigahæstu menn í miklum vanda á Thai chess open 2011!

Fyrstu 3 umferðirnar á Thai Open hafa skapað mikið uppnám meðal sterkustu manna mótsins. Aðeins 5 keppendur, þar af aðeins 2 af 10 stigahæstu, lifðu fyrstu þrjár umferðirnar af óskaddaðir á Opna Taílenska 2011 í Pattaya.

Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Ísland – Holland

Ísland og Holland munu eigast við í vináttulandsleik í bréfskák.  Keppnin hefst 1 maí og er telft á 15 borðum, tvofold umferð. Liðin eru skipuð sem hér segir:
Continue reading

Posted in Skákfréttir | Tagged , , | Leave a comment

Meistaramót Skákskóla Íslands 2011

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2010/2011 hefst föstudaginn 27. maí og lýkur mótinu þann 29. maí, samtals þrír keppnisdagar. Mótið fer fram í húsakynnum skólans að Faxafeni 12. Þátttökurétt hafa allir nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram dagana 15. – 24. apríl n.k.

Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram dagana 15.  – 24. apríl  n.k. Mótið fer fram í Faxafeni 12, Reykjavík.   Efstu tvö sætin gefa föst sæti í Landsliðsflokki 2012. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , | Leave a comment

Er Short að lenda í vanda með úthaldið í Thai Open?

Tveir efstu menn Thai open, þeir Paco Vallejo frá Spáni og hinni enski Nigel Short gerðu stutt og öruggt jafntefli í 5 umferð á Thai Open 2011. Fyrir vikið eru 4 skákmenn efstir og jafnir eftir 5 umferðir. Þetta eru stórmeistararnir Vallejo Pons Francisco    (ESP 2707), Short Nigel D (ENG    2676), Zaw Win Lay (MYA    2382) og Kunte Abhijit (IND 2526). 10 keppendur koma svo hálfum vinningi á eftir þeim, þar af 3 SM. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Amazon og yourchessnews.com/skakfrettir í samstarf!

Amazon og yourchessnews.com/skakfrettir hafa ákveðið að hefja samstarf. Lesendur yourchessnews.com sem og yourchessnews.com/skakfrettir munu héðan í frá geta farið inn á Amazon.com og keypt einhverja af þeim fjölmörgu gæðavörum sem þar eru. Vonast síðan eftir því að menn og konur nýti sér þetta og mun síðan nýta tækifærið til að benda á margvíslegar gæða skákvörur sem í boði eru á síðunni. Lesendur yourchessnews.com/skakfrettir eru þó á engann hátt bundnir af þeim hugmyndum, heldur geta þeir keypt allt það sem í boði er á amazon.com!

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Mikil barátta í 4 umferð Skákmóts öðlinga.

4 umferð á Skákmóti öðlinga fór fram í kvöld og einkenndi mikil barátta skákir kvöldsins. Á fyrsta borði var þung barátta milli þeirra Þorsteins og Kristjáns. Á tímabili hafði maður á tilfinningunni að Ulf Anderson væri að tefla við sjálfan sig því að kapparnir telfdu afar vandað og vel en gáfu engin færi á sér. Stutt jafntefli var því sanngjörn niðurstaða. Kristján fékk þær gleðilegu fréttir rétt fyrir skák að hann hefði orðið afi rétt fyrir skákina Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , , | Leave a comment

Myndir frá skákboxinu

Fyrsta skákboxið á Íslandi fór fram fyrir skömmu. Skemmtileg uppákoma en keppendur voru þeir Björn Jónsson TR og Daníel starfsmaður CCP á Íslandi. Björn vann en myndband af viðburðinum má sjá hér fyrir neðan. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged | Leave a comment

Jón Hákon og og Sóley Lind skólaskákmeistarar Hafnarfjarðar

Skólaskákmót Hafnarfjarðar fór fram í gær í Íþróttahusinu að Ásvöllum. Skólaskákmeistari í eldri flokk varð Jón Hákon Richter, Öldutúnsskóla. Hann vann allar sínar skákir. Í 2 sæti varð Hans Adolf Linnet, Lækjarskóla, og í 3. sæti varð Markús Lubker, Víðistaðaskóla. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Öruggur sigur Glerárskóla í sveitakeppni grunnskóla á Akureyri

Fimm sveitir mættu til leiks í sveitakeppni grunnskóla á Akureyri sem fram fór í dag. Fyrirfram mátti gera ráð fyrir að sveitir Glerárskóla og Brekkuskóla myndu bítast um sigurinn og þegar þessar sveitir mættust í síðustu umferð höfðu þorparar betur, fengu 3 vinninga gegn einum. Þeir unnu því mótið með 14 Skólaskákmót Ak. Yngri flokkur 2011 467 vinningum af 16 mögulegum. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Landsliðsflokkur hefst á morgun!

Landsliðsflokkur á Skákþingi Íslands byrjar á morgun. Mótið fer fram við afar góðar aðstæður á Eiðum og er keppendalistinn mjög athyglisverður. Mótið hefur alla burði til að verða mjög áhugavert og vonandi að keppendur láti sverfa til stáls við þær góðu aðstæður sem þeim er boðið upp á. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , | 4 Comments

Short einn í forystu eftir hörkuskák.

Enski stórmeistarinn Nigel Short er kominn með forystu í Thailand Chess Open í Pattaya, eftir baráttusigur gegn eina stormeistara Burma, Zaw Win lay. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

4 umferð í Landsliðsflokki

4 umferð í Landsliðsflokki fer fram í dag.Mótið hefur vel fram, hörð barátta í skákunum og fá stutt jafntefli. Sem sagt til fyrirmyndar! Spáin fyrir umferðina í dag kemur hér: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Áskorendaflokkur hófst í dag

Áskorendaflokkur hófst í dag í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Þátt taka 54 skákmenn en styrkleiki flokksins er í veikara lagi. Væntanlega eru aðallega tvær skýringar á því. Í fyrsta lagi er hann haldinn um páskana en mikið framfaraspor var stigið á sínum tíma þegar flokkurinn var færður í ágústmánuð. Því miður var í fyrra tekin sú ákvörðun af stjórn Skáksambands Íslands að færa hann aftur til páska Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

5 umferð í Landsliðsflokki fer fram í dag!

5 umferð í landsliðsflokki fer fram í dag. 3 efstu menn hafa skorið sig frá hópnum og afar mikilvægt er fyrir þá að vinna í dag því mjög ólíklegt er að aðrir blandi sér í baráttuna. Því er mikilvægt fyrir þá að halda í við hina í efstu sætunum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , | Leave a comment

Sigurður Arnarson sigraði á 15 mínútna móti með 15 mínútna umhugsunartíma!

Í dag tefldu skákfélagsmenn 15 mínútna mót með 15 mínútna umhugsunartíma. Átta skákmenn mættu til leiks og tefldu einfalda umferð, allir við alla.

Hjörleifur Halldórsson og Sigurður Arnarson Leikar fóru þannig að Sigurður Arnarson sigraði örugglega með 6,5 vinninga af 7 mögulegum, leyfði aðeins jafntefli gegn Sveinbirni Sigurðssyni. Tómas Veigar Sigurðarson var í öðru sæti með 5,5 vinninga og Hjörleifur Halldórsson þriðji með 4,5.

Myndir

Næst á dagskrá hjá félaginu er Bikarmótið n.k. fimmtudag kl. 13.

Lokastaða efstu manna:

SigurðurArnarson 6,5
Tómas Veigar Sigurðarson 5,5
Hjörleifur Halldórsson 4,5
Haki Jóhannesson 4

Sigurður Arnarson hefur telft vel í vetur

Sigurður Arnarson hefur telft vel í vetur

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Lítið um óvænt úrslit í 2 umferð Áskorendaflokks

Svavar Viktorsson gerði jafntefli gegn Eiríki Björnssyni og Nökkvi Sverrisson gegn Jóhanni Ingvarssyni á 2 umferð Áskorendaflokks. Að öðru leyti var lítið um óvænt úrslit á mótinu. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , , | Leave a comment

Mikið um óvænt úrslit í 3 umferð Áskorendaflokksins

Mikið var um óvænt úrslit í 3 umferð áskorendaflokksins. Gylfi Þórhallsson tók eitrað peð gegn Degi Ragnarssyni og mátti lúta í lægra haldi fyrir vikið. Páll Sigurðsson missteig sig illilega í byrjuninni gegn Jóhanni H. Ragnarssyni. Jóhann vann hins vegar ekki rétt úr því og fékk tapað fyrir vikið. Í framhaldinu telfdi Páll svo af miklu öryggi ig innbyrti mikilvægan sigur. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , | Leave a comment

Dagur Ragnarssson heldur áfram að koma á óvart í Áskorendaflokki

Dagur Ragnarsson hefur komið mjög á óvart í Áskorendaflokknum og er nú efstur ásamt Hjörvari Steini Grétarssyni. Dagur vann Halldór Pálsson í kvöld og hefur með því ávallt unnið stigahærri andstæðinga. Páll Sigurðsson varð fyrir því að leika slæmum afleik sem kostaði hann tvo menn í skák sinni Hjörvari Steini Grétarssyni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , , | Leave a comment

6 umferð í Landsliðsflokki fer fram í dag.

Í dag klukkan 14 hófst 6 umferð í Landsliðsflokki. Tæknilegir erfiðleikar urðu þess valdandi að ekki var hægt að fylgjast með flokknum eins og til stóð en nú eru þeir afstaðnir og mun síðan fylgjast grannt með lokaslagnum.

Telft er við afar góðar aðstæður, innan skákborðs sem utan enda eru austfirðingar höfðingjar heim að sækja. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , , | Leave a comment

Hjörvar einn efstur í Áskorendaflokknum eftir 5 umferðir

Hjörvar Steinn Grétarsson er einn efstur í Áskorendaflokknum eftir 5 umferð. Hann vann í kvöld Dag Ragnarsson eftir að hafa platað hann laglega stuttu eftir byrjunarleikina. Töluvert var um óvænt úrslit, þar má nefna td sigur Olivers Aron Jóhannessonar (1554) á Jóhanni Ingvarssyni (2135). Einnig vann Nansy Davíðsdóttir (0) Óskar Long (1560), Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Héðinn með hálfsvinnings forskot eftir 6 umferð í Landsliðsflokki

Héðinn Steingrímsson er orðinn einn efstur í Landsliðsflokki á Skákþingi Íslands eftir 6 umferð með 5,5 vinninga. Hann vann Róbert Lagermann í dag með fallegri skiptamunsfórn í 19 leik. 9 leikjum síðar gafst Róbert upp. Hans helstu keppinautar, Bragi og Henrik gerðu á sama tíma baráttujafntefli. Bragi er því í öðru sæti með 5 vinninga en Henrik er með 4,5. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Bragi og Henrik pressa á Héðinn í Landsliðsflokki

Bragi og Héðinn halda áfram að pressa á Héðinn eftir 7 umferð í Landsliðsflokki. Héðinn gerði jafntefli við Stefán í mikilli baráttuskák. Henrik nýtti sér það strax til að minnka forskot Héðins á hann um hálfan vinning með því að leggja Ingvar að velli. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Hjörvar og Davíð gerðu jafntefli í toppslag 6 umferðar í Áskorendaflokki

Hjörvar og Davíð gerðu jafntefli í toppslag 6 umferðar í Áskorendaflokki. Þar með hefur Hjörvar hálfan vinning í forskot á næstu 3 menn, þá Davíð, Gylfa og Dag Ragnarsson. En Dagur kom enn einu sinni á óvart í dag með því að leggja Sævar Bjarnason að velli. Eins og staðan er núna er Dagur Ragnarsson með 66 stiga hækkun! Continue reading

Posted in Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

10 keppendur berjast um sætin tvo í Landsliðsflokki eftir 7 umferð Áskorendaflokks

7 umferð fór fram í dag í Áskorendaflokkni. Baráttan um sætin tvo í Landsliðsflokki er orðin afar hörð. 10 skákmenn eiga raunhæfa möguleika á að ná þessum sætum þegar tvær umferðir eru eftir.

Hjörvar hefur leitt allt mótið og eftir umferðina varð engin breyting á því. Því hann vann Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , , | Leave a comment

Tómas Veigar Bikarmeistari Skákfélags Akureyrar 2011

Bikarmóti Skákfélags Akureyrar lauk í dag. Mótið fer þannig fram að nöfn þátttakenda eru sett í pott, svo er dregið í hverri umferð hverjir mætast (sá sem er dreginn á undan er með hvítt). Vel getur komið fyrir að sömu menn mætist aftur og aftur og jafnvel með sömu liti, fer allt eftir útdrættinum. Menn detta svo út eftir að hafa tapað 3 vinningum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Héðinn og Bragi gerðu jafntefli í skák dagsins í Landsliðsflokki

Næst síðasta umferð Landsliðsflokks fór fram í dag. Það má segja að menn hafi klórað sér í hausnum yfir skák dagsins, þegar tveir af þeim þremur sem eiga möguleika á sigri mættust. Þetta voru þeir Bragi Þorfinnsson og Héðinn Steingrímsson. Héðinn kom mjög á óvart með jafnteflisboði í 2 leik. Löglegt en afar sérkennilegt. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Hjörvar tryggði sér sæti í Landsliðsflokki þrátt fyrir að ein umferð sé eftir.

Hjörvar Steinn Grétarsson tryggði sér sæti í Landsliðsflokki með sigri á Erni Leó Jóhannssyni. Davíð Kjartansson vann á sama tíma þýðingarmikinn sigur á Sævari Bjarnasyni. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót, Uncategorized | Tagged , | Leave a comment

Héðinn Steingrímsson Íslandsmeistari í skák 2011!

Héðinn Steingrímsson tryggði sér sigur í Landsliðsflokki 2011, og varð þar með Íslandsmeistari 2011, með því að vinna Henrik Danielsen í hörkuskák í dag. Skákin var báðum til sóma, hart barist og spennandi.  Þetta er annar Íslandsmeistaratitill Héðins. 1990 fór mótið fram á Höfn í Hornafirði og þar sigraði Héðinn, aðeins 15 ára gamall. Continue reading

Posted in Skákmenn, Skákmót | Tagged , , , | Leave a comment

Rúnar páskameistari Goðans 2011.

Rúnar Ísleifsson varð Páskameistari Goðans 2011, en páskaskákmótið var haldið í dag á Húsavík. Rúnar fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Ægisson varð reyndar efstur að vinningum með 6,5 vinninga, en þar sem hann er utanfélagsmaður varð hann að láta sér páskaegg duga sem verðlaun.

Rúnar Ísleifsson, Sigurður Ægisson og Hermann Aðalsteinsson með páskaeggin sín.

Rúnar Ísleifsson, Sigurður Ægisson og Hermann Aðalsteinsson með páskaeggin sín.

Rúnar Ísleifsson, Sigurður Ægisson og Hermann Aðalsteinsson með páskaeggin sín.

Rúnar og Sigurður gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign sinni, en Hermann Aðalsteinsson krækti í hálfan vinning gegn Rúnari á meðan Sigurður vann aðrar skákir. Hermann varð svo í þriðja sæti með 4,5 vinninga. Hlynur Snær Viðarsson varð efstur í yngri flokki með 2,5 vinninga.

1 Sigurður Ægisson, 6.5 16.0 24.0 25.5
2 Rúnar Ísleifsson, 6 15.5 24.0 22.5
3 Hermann Aðalsteinsson, 4.5 17.5 26.0 17.0
4 Ármann Olgeirsson, 4 18.5 27.0 16.5
5 Heimir Bessason, 3 15.5 24.0 12.0
6-7 Benedikt Þór Jóhannsson, 2.5 17.0 25.5 7.5
Hlynur Snær Viðarsson, 2.5 15.5 23.5 10.0
8-10 Valur Heiðar Einarsson, 2 17.0 25.5 11.0
Sigurbjörn Ásmundsson, 2 14.5 23.0 11.0
Snorri Hallgrímsson, 2 14.5 22.5 7.0

Posted in Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hjörvar vann Áskorendaflokkinn með miklu öryggi

Hjörvar Steinn Grétarsson vann Áskorendaflokkinn af miklu öryggi, 1,5 vinningi á undan næstu mönnum. Hjörvar lenti í ákveðnum vandræðum í byrjuninni í dag gegn Jóhanni H. Ragnarssyni. Jóhann náði þó ekki að nýta sér það þar sem hann fórnaði manni en sú fórn stóðst ekki. Fyrir vikið var staðan töpuð hjá honum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Vormót TV: Björn Ívar og Nökkvi efstir

Björn Ívar Karlsson (2220) og Nökkvi Sverrisson (1824) eru efstir að loknum þremur umferðum á Vormóti TV. Björn Ívar sigraði Karl Gauta í snarpri skák og Nökkvi vann Sigurð. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Páskahraðskákmót Skákfélags Akureyrar hefst kl. 13

Páskahraðskákmót Skákfélags Akureyrar fer fram í dag og hefst kl. 13. Til verðlauna eru páskaegg af ýmsum stærðum og gerðum. Páskahérinn kemur í heimsókn og heiðrar best klædda keppandann. Allir velkomnir.

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik Danielsen gerði stutt jafntefli í 1 umferð á SM mótinu í Lübeck

Það er stutt á milli viðburða hjá SM Henrik Danielsen. Því að hann var varla búinn að tefla í  Landsliðsflokki á Eiðum þegar hann var mættur á SM mót Lübeck! 1 umferð fór fram í dag og mætti hann Carsten Hoi. Þeir gerðu stutt 6 leikja jafntefli svo hann fær tíma til að kasta mæðinni fyrir 2 umferð. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Áskell páskameistari SA

Páskahraðskákmót Skákfélags Akureyrar fór fram í dag. Tólf skákmenn mættu til leiks í sumarblíðunni sem einkennir norðurlandið alla jafnan og tefldu tvöfalda umferð, allir við alla. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Viðtöl og umfjöllun um laugardagsæfingar TR hjá Leynifélaginu á Rás 1!

3 maí kl. 20.00 á Rás 1 mun Leynifélagið verða með viðtöl og umfjöllun um hinar sí vinsælu laugardagsæfingar Taflfélags Reykjavíkur. En tekin voru viðtöl við nokkra krakka á æfingu fyrir stuttu síðan.

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur 2011 – sunnudaginn 1. maí

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 1. maí í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14 og stendur til ca. kl. 18. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Bandaríska meistaramótið er langt komið

Á morgun hefjast einvígi um Bandaríska meistaratitilinn sem og um brons verðlaunin. Fyrirkomulag mótsins var með nýju og afar skemmtilegu fyrirkomulagi. Fyrst var tefld einföld umferð í tveimur 8 manna riðlum og síðan fóru tveir efstu menn í undanúrslit. Þar tefldu þeir einfalda þeir tvær skákir. Sigurvegar þessara einvígja mætast svo í einvígunum á morgun. Tvær skákir eru tefldar í þessum einvígjum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Henrik gerði aftur jafntefli á SM mótinu í Lübeck

Henrik gerði jafntefli í 2 umferð SM mótsins í Lübeck. Andstæðingur hans var úkraínski alþjóðlegi meistarinn Michael Kopylov. 10 skákmenn taka þátt og má segja að mótið hafi hafist í dag eftir ótrúlega rólegar skákir í gær. En þá lauk þremur skákanna með jafntefli í innan við 20 leikjum og einni var frestað! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Viðtal við Héðinn Steingrímsson í morgunútvarpi Rásar 2

Viðtal er við Héðinn Steingrímsson í morgunútvarpi Rásar 2 í dag. Þar fjallar hann um sigur sinn á Íslandsmótinu sem og feril hans. Einnig er fjallað um spurninguna hvort kenna eigi skák í skóla. Viðtalið má nálgast hér.

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

4 efstir og jafnir á Skákmóti öðlinga eftir 5 umferðir

5 umferð Skákmóts öðlinga fór fram í kvöld. Hörð barátta einkenndi skákirnar. Jafntefli varð á þremur efstu borðunum en þar var hörkubarátta í þeim að undanskildu frekar stuttu jafntefli, innan við 20 leiki, milli Þorsteins og Gunnars. Skák Kristjáns og Gylfa var í jafnvægi nánast allan tímann og Ágúst varðist vel gegn Jóhanni. Continue reading

Posted in Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik er í 1 sæti ásamt fleirum á SM mótinu í Lübeck í Þýskalandi

Henrik Danielsen vann Þjóðverjann Dusan Nedic í 3. umferð alþjóðlega SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi.
Henrik hefur 2 vinninga og er efstur ásamt úkraínska alþjóðlega meistarann Michael Kopylov (2446), þýska alþjóðlega meistaranum Christoph Scheerer (2422) og rússneska stórmeistaranum Vladimari Epishin (2567).

Epishin

Epishin gerði jafntefli fyrr í dag gegn hinum 14 ára gamla Svane

Í morgun telfdu Svane og Epishin frestaða skák úr 1 umferð. Skákinni lyktaði með jafntefli.

Úrslitin í dag urðu:
Danielsen, Henrik – Nedic, Dusan 1-0
Svane, Rasmus – Kopylov, Michael 0,5-0,5
Janz, Frerik – Hoi, Carsten 0,5-0,5
Krause, Ullrich – Epishin, Vladimir 0,5-0,5
Von Herman, Ulf – Scheerer, Christoph 0-1

Heimasíða mótsins.

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Aðalfundur Skáksambands Íslands

Til aðildarfélaga Skáksambands Íslands

Reykjavík, 28. apríl 2011

FUNDARBOÐ

Stjórn Skáksambands Íslands boðar hér með til aðalfundar Skáksambandsins í samræmi við 8. gr. laga S.Í.

Fundurinn verður haldinn laugardaginn 28. maí nk. kl. 10.00 fyrir hádegi í Faxafeni 12, Reykjavík.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórn Skáksambandsins sendir ennfremur með fundarboðinu gögn varðandi skrá yfir fullgilda félagsmenn aðildarfélaga S.Í. Stjórnir aðildarfélaganna eru vinsamlegast beðnar að útfylla skrár þessar vandlega og senda þær Skáksambandi Íslands í pósth. 8354, 128 Reykjavík eða á netfang skaksamband@skaksamband.is fyrir 14. maí 2011.

Bréf þetta er sent ásamt gögnum í samræmi við 9. gr. laga S.Í., en sú grein hljóðar svo:
 Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi á hvert félag eitt atkvæði enda hafi það a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi í Keppendaskrá Skáksambandsins tveim vikum fyrir aðalfund.  Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir í Íslandsmót skákfélaga það árið. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður.  Enginn fulltrúi getur farið með meira en eitt atkvæði á fundinum.  Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.

Einnig skal bent á 6. grein:
Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa á aðalfundi.  Skákdeildir í félögum geta átt aðild að sambandinu, enda hafi þá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum.  Heimilt er tveimur eða fleiri aðildarfélögum í sama landshluta að stofna með sér svæðissamband.

Taflfélögunum gefst kostur á að birta stutta skýrslu um starfsemi sína á síðasta starfsári í árrsskýrslu Skáksambands Íslands. Hafi félögin áhuga á þessu þarf efni að hafa borist skrifstofu S.Í. í síðasta lagi 14. maí nk.

Hjálagt: Lagabreytingatillögur.

Virðingarfyllst,
SKÁKSAMBAND ÍSLANDS

Aðalfundur SÍ 2011 – breytingatillögur HGE

Frá Héðni Steingrímssyni

Skáklög SÍ – breytingar TV

Tillaga að lagabreytingu HA

Posted in Skákfréttir, Uncategorized | Leave a comment

Gata Kamsky og Youri Shulman í úrslit bandaríska meistaramótsins!

Undaúrslitum í bandaríska meistaramótinu er nú lokið. Gata Kamsky þurfti bara 2 skákir til að slá AM Samuel L Shankland út með 1,5 – 0,5. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Skák og grín

Það er alltaf gaman að brjóta hlutina upp með smá gríni. Hér er gott myndband á ferðinni. Continue reading

Posted in Skákmyndbönd | Leave a comment

Kasparov ræðir um mistök í skák

Hér er á ferðinni stutt en áhugavert viðtal við Kasparov varðandi mistök í skák. Continue reading

Posted in Skákmenn, Skákmyndbönd | Tagged | Leave a comment

Guðmundur Kristinn og Vignir Vatnar kjördæmismeistarar Reykjaness

Guðmundur Kristinn Lee, Salaskóla, og Vignir Vatnar Stefánsson, Hörðuvallaskóla, urðu í dag kjördæmismeistarar Reykjaness í skólaskák. Guðmundur í eldri flokki en Vignir í þeim yngri. Birkir Karl Sigurðsson, Salaskóla, tryggði sér einnig keppnisrétt á Landsmótinu en hann endaði í 2. sæti í eldri flokki. Kjördæmismót 2011 Reykjanes Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Firmakeppni: Eining Iðja (Áskell Örn) efst í D – riðli.

D- riðill firmakeppninnar var tefldur í gær. Þrettán skákmenn mættu til leiks og tefldu einfalda umferð, allir við alla. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Elsa María sigraði á fimmtudagsmóti

Elsa María Kristínardóttir sigraði á fimmdudagsmóti TR 28. apríl. Hún fékk 6 vinninga, tapaði bara fyrir Unnari Þór Bachmann, sem lenti í 2. sæti með 5 vinninga en hann tapaði fyrir tveimur ungum og mjög efnilegum skákmönnum: Gauta Páli Jónssyni og Leifi Þorsteinssyni. Gauti Páll og Kjartan Másson lentu í 3.-4.sæti með 4,5 vinninga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik vann hinn 14 ára gamla Svane og leiðir mótið

Henrik vann í dag hinn 14 ára gamala Svane í 4 umferð SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi. Mörg jafntefli einkenndu umferðina eins og í hinum umferðunum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik er efstur í SM mótinu í Lübeck ásamt Epishin

Eftir jafntefli Henrik í 5 umferð, í SM mótinu í Lübeck, er hann efstur ásamt Epishin með 3,5 vinninga. Epishin vann Scheerer í dag.


Úrslit liggja ekki enn fyrir í skák hins 14 ára gamla Svane og Nedic. En staðan var jafnteflisleg síðast þegar fréttist.

Svane

Úrslit liggja ekki enn fyrir í skák Svane

Svane, Rasmus – Nedic, Dusan
Janz, Frerik – Danielsen, Henrik 0,5-0,5
Krause, Ullrich – Kopylov, Michael 0,5-0,5
Von Herman, Ulf – Hoi, Carsten 0,5-0,5
Scheerer, Christoph – Epishin, Vladimir 0-1

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Ásmundur Hrafn og Atli Geir kjördæmismeistarar Austurlands

Kjördæmismóthttp://www.yourchessnews.com/skakfrettir/wp-admin/edit.php Austurlands fór fram fyrir skemmstu. Sigurvegarar urðu Ásmundur Hrafn Magnússon, í eldri flokki, og Atli Geir Sverrisson, í yngri flokki. Báðir eru þeir úr Egilsstaðaskóla. Þeir fá báðir keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram á Akureyri eftir hálfan mánuð. Kjördæmismót Austurlands 2011 – verðlaunahafar í yngri flokki Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik og Epishin leiða eftir 6 umferðir í Lübeck í Þýskalandi

Fyrst skák úr 5 umferð en úrslit hennar lágu ekki fyrir fyrr en í dag. Svane, Rasmus – Nedic, Dusan 0,5-0,5. Og enn og aftur vantar úrslit í einni umferð. En þjóðverjarnir hafa þann leiða sið að uppfæra ekki úrslitin úr umferðinni ef umsjónamaður heimasíðu þeirra þarf að bregða sér af bæ áður en umferðinni er lokið! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Nýr FIDE listi.

Nýr listi FIDE með alþjóðlegum stigum er kominn út. Hann gildir frá 1 maí.

Anand leiðir listann tveimur stigum á undan Carlsen og sjö á undan Aronian.

Á íslenska listanum er þau tíðindi að Héðinn Steingrímsson eru kominn yfir Hannes Hlífar Stefánsson, og örlítið á eftir Hannei er Henrik Danielsen. Það er því hugsanlegur, og alls ekki óraunhæfur möguleiki, að við sjáum mikið breytta borðaröð á næstu olympíuleikum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

Skákdeild Fjölnis heiðrar Íslandsmeistara

Nýkrýndur Íslandsmeistari í skák Héðinn Steingrímsson stórmeistari mætti á síðustu hefðbundnu skákæfingu Fjölnis í vetur og var þá heiðraður af félögum sínum í Fjölni með áritaðri skákbók. Héðinn þakkaði fyrir sig með því að bjóða upp á klukkutíma kennslustund í úrvalsflokki skákdeildarinnar. Continue reading

Posted in Skákmenn | Tagged , | Leave a comment

Pörun í 6 umferð Skákmóts öðlinga

Pörun í 6 umferð Skákmóts öðlinga liggur nú fyrir. Þar ber hæst viðureign Gunnars Gunnarssonar og Kristjáns Guðmundssonar sem og Þorsteins Þorsteinssonar og Jóns Þorvaldssonar. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Dagur og Oliver Aron skólaskákmeistarar Reykjavíkur

Skólaskákmót Reykjavíkur í eldri og yngri flokki var haldið í Taflfélagi Reykjavíkur á laugardaginn.
Teflt var um 3 sæti á Landsmóti í eldri flokki og tvö sæti í yngri flokki. Báðir titlarnir fóru á kunnuglegar slóðir; Þeir félagar úr Rimaskóla Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson voru öruggir sigurvegarar og báru af í sínum flokkum. Drengirnir tveir eru í svakalegri framför eins og stigahækkanir þeirra á nýjum lista sýna. Vert er að geta árangurs Leifs Þorsteinssonar sem hefur bætt sig mikið í vetur. P4300033

Úrslit:

Eldri flokkur:
1. Dagur Ragnarsson 5.5v/6
2. Hrund Hauksdóttir 4v/6
3. Dagur Kjartansson 4v/6

Öll þessi fara á Landsmótið í Skólaskák um miðjan maí á Akureyri.

Keppendur voru 7 talsins og tefldu allir við alla.

Yngri flokkur:
1. Oliver Aron Jóhannesson 7v/7!
2. Leifur Þorsteinsson 6v
3. Jacob Alexander Petersen 5v

Oliver og Leifur eru fulltrúar Reykjavíkur á Landsmóti.

Keppendur voru 24.

Nánari úrslit á Chess Results: eldri flokkur og yngri flokkur.

Skákstjórn var í höndum Stefáns Bergssonar.

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Mikael Jóhann og Jón Kristinn kjördæmismeistarar Norðurlands eystra

Mikael Jóhann Karlsson og Jón Kristinn Þorgeirsson urðu kjördæmismeistarar í eldri og yngri flokki í skólaskák, en kjördæmismótið var haldið á Akureyri í gær. þeir unnu báðir sína flokka með fullu húsi vinninga. Hersteinn Heiðarsson og Logi Jónsson urðu jafnir í 2-3. sæti með 5 vinninga og háðu því aukakeppni til að skera úr um Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Emil Unglingameistari Reykjavíkur 2011 – Veronika Steinunn Stúlknameistari Reykjavíkur 2011

Barna-og unglingameistaramót Reykjavíkur sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur fór fram í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur í dag, 1. maí. Mótið var opið fyrir börn á grunnskólaaldri. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Skákir Júlíusar Bogasonar

Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði eru haldnir fræðslufyrirlestrar hjá Skákfélagi Akureyrar. Fyrsta fimmtudag maí mánaðar ber upp á fimmta dag mánaðarins og þá mun Áskell Örn Kárason fjalla um skákir Júlíusar Bogasonar (1912-1976). Júlíus var um áratugaskeið einn virkasti og öflugasti skákmaðurinn hér í bæ og mörgum minnisstæður. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Tagged | Leave a comment

Henrik vann Von Herman í 7 umferð SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi

Henrik tryggði stöðu sína í toppbaráttunni í SM mótinu í Lübeck í Þýsklandi með því að vinna Von Herman. Þó undur og stórmerki gerðust að aðeins einni skák lauk með jafntefli í umferðinni en mikið magn jafntefla hefur einkennt hverja umferð. 7 umferðin er fyrsta umferðin þar sem sigrar eru fleiri en jafntefli!
Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Henrik og Epishin töpuðu báðir í 8 umferð SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi

Forystusauðirnir Henrik og Epishin töpuðu báðir í 8 umferð SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi. En þeir höfðu verið mjög traustir fram að þessari umferð. Þetta þýðir að nú eru 3 efstir og jafnir með 5,5 vinninga. Þeir Henrik, Epishin og Kopylov. Henrik og Epishin mætast einmitt í síðustu umferðinni sem fram fer á morgun og því gæti Kopylov komist fram hjá þeim á síðustu metrunum. En Henrik og Epishin hafa leitt mest allt mótið. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Davíð sigraði á Hraðkvöldi Hellis

Davíð kjartansson sigraði örugglega á hraðkvöldi Hellis sem fram fór 2. maí. Davíð fékk 8,5v í níu skákum og leyfði aðeins jafntefli í spennandi tímahraksskák við Ólaf Gauta. Annar varð Sæbjörn Guðfinnsson með 7v og þriðji varð Örn Stefánsson með 6,5v. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Leynifélagið tekur viðtöl við krakka á Laugardagsæfingum TR

Leynifélagið á Rás 1 fjallaði um laugardagsæfingar Taflfélags Reykjavíkur sem og tók viðtöl við krakka í Taflfélagi Reykjavíkur. Það má hlusta á þáttinn hér
TR.

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Henrik vann SM mótið í Lübeck í Þýskalandi ásamt Epishin og Kopylov

Röðin breyttist ekkert í síðustu umferð SM mótsins í Lübeck í Þýskalandi því topparnir þrír gerðu jafntefli í síðustu umferð. Henrik og Epishin mættust og varð jafntefli niðurstaðan eftir 28 leiki en þá var ekkert annað í stöðunni en jafntefli. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Byrjanagildrur

Ein hugmyndin að baki þessari síðu er ma að gauka að byrjendum sem lengra komnum ýmsum æfingum og hugmyndum. Hér kemur gildra sem að stundum kemur upp í td Sikileyjarvörn og mótteknu drottningarbragði og nauðsynlegt er að kunna. Continue reading

Posted in Skákefni fyrir byrjendur, Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Íslensk sveit tekur þátt í EM öldungarsveita

Í dag hófst í Grikklandi evrópukeppni öldungaliða. Það er, ekki er um að landslið að ræða heldur liða. Ein sveit frá Íslandi tekur þátt í mótinu og ber hún enskt nafn, Polar Bears Iceland. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Áskorendaeinvígi FIDE hefjast í dag!

1 umferð áskorendaeinvígja FIDE fer fram í dag.Keppnin er með útsláttarfyrirkomulagi  og fer fram í Kazan. 1 og 2 umferð er með 4 skákum og svo atskák og hraðskák ef á þarf að halda . En í úrslitaeinvíginu eru telfdar 6 skákir.  Í 1 umferð mætast: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Íslenska sveitin á EM öldunga gerði jafntefli við finna í 2 umferð.

Jafntefli varð hjá íslensku sveitinni á EM öldunga í 2 umferð. Þeir mættu finnskri sveit, Turku, með menn um 2000 stig á öllum borðum. Úrslit í skákunum urðu eftirfarandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

3 umferðir eru búnar í Meistaramóti Asíu

Meistaramót Asíu er nú í fullum gangi í Íran og er mótið mjög áhugavert. 28 stórmeistarar og 11 stórmeistarar kvenna eru meðal þátttakenda. Harika Dronavalli (2524) frá Indlandi and fyrrverandi heimsmeistari Rustam Kasimjanov (2687) frá Uzbekistan eru stigahæstu keppendur hvers flokks. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Jón Trausti og Dagur efstir á fjölmennu skákmóti Rimaskóla 2011

Skákmót Rimaskóla var haldið í 18. sinn í hátíðarsal skólans og tóku 60 nemendur þátt í mótinu að þessu sinni. Allir sterkustu skákmenn skólans voru með í mótinu og því hart barist á efstu borðum frá upphafi til enda lokaumferðar. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Emil og Filip kjördæmismeistarar Suðurlands

Kjördæmamótið í skólaskák fyrir Suðurland var haldið í Selinu félagsheimili SSON í gær. Teflt var í tveimur flokkum venju samkvæmt, 1.-7. bekk og 8.-10. bekk. Flúðaskóli fór mikinn og átti flesta keppendur og allflesta verðlaunahafa. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Björn Ívar sigurvegari á Vormóti TV

Lokaumferð Vormótsins fór fram í kvöld. Björn Ívar hafði vinningsforskot fyrir umferðina en Nökkvi og Sverrir komu á hæla hans. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Mikil spenna fyrir síðustu umferð á Skákmóti öðlinga

Mikil spenna er fyrir síðustu umferð á Skákmóti öðlinga. 6 skákmenn eru jafnir og efstir með 4,5 v af 6! Hins vegar hefur leiðinlegt atvik skemmt mikið fyrir í toppbaráttunni og umgjörð mótsins. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Meistaramót Skákskóla Íslands 2011

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2010/2011 hefst föstudaginn 27. maí. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Fimmtudagsmót hjá TR í kvöld

Fimmtudagsmót T.R. fer að venju fram í kvöld og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Stigamót Hellis fer fram 1.-3. júní

Stigamót Taflfélagsins Hellis verður haldið í níunda sinn sinn dagana 1.-3. júní.   Fyrirkomulag mótsins hefur verið mismunandi í gegnum tíðina en að þessu sinni er mótið haldið í kringum uppstigningadaginn þannig að keppendur munu eiga frí helgina á eftir.  Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Sigur vannst á norskri sveit á EM öldungasveita

Ísbjarnasveitin íslenska á EM öldunga vann norska sveit, Blindern Oldtimers, í 3 umferð mótsins.  Þar með er sveitin  í 20 sæti með 3 stig en 36 sveitir taka þátt. Úrslit á einstökum borðum urðu eftirfarandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Allt jafnt í áskorendaeinvígjum FIDE!

Allar skákir 8 liða úrslitanna í áskorendaeinvígjum FIDE enduðu með jafntefli. Lokastaðan í skák Topalovs og Kamsky var afar skemmtileg. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

2 umferð Áskorendaeinvígja FIDE hefst kl. 11.00

2 umferð 8 liða úrslitanna í áskorendaeinvígjum FIDE hefst kl. 11.00 í dag.
Hægt er að sjá skákirnar beint hérna. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Saga Alexander Alekhine

Alexander Alekhine er án efa einn frægasti skákmeistari sögunnar. Frumlegur skákmaður með skemmtilegar stíl. Hér er saga hans rakin með skemmtilegum hætti! Continue reading

Posted in skáksögumolar | Leave a comment

Birkir Karl sigraði á fimmtudagsmóti

Birkir Karl Sigurðsson sigraði á fimmtudagsmótinu 5. maí með fullu húsi (7 vinn. af 7 mögul.). Örn Leó lenti í 2. sæti með 5 vinninga. Keppendur voru 8 talsins og tefldu allir við alla. Engin kona var með að þessu sinni. Björgvin Kristbergsson kom sjálfum sér á óvart og fékk 3 vinninga en hann vann líka frestaða skák úr Öðlingamóti TR fyrr um kvöldið. Continue reading

Posted in Uncategorized | Tagged | Leave a comment

Íslenska sveitin á EM öldunga vann þá ensku í 4 umferð

Íslenska sveitin á EM öldunga vann þá ensku með 2,5 – 1,5 í 4 umferð. Þessi sigur setur liðið í 14 sæti af 35. Arnthor hefur staðið sig afar vel á fyrsta borði og er nú taplaus með 3 vinninga. Einnig hefur Gunnar Gunnarsson staðið sig vel á 2 borði og er einnig með 3v. Úrslit á einstökum borðum urðu: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Jafnt í öllum einvígjum Áskorendaeinvígja FIDE nema einu

Kamsky vann góðan sigur á Topalov í 2 umferð Áskorendaeinvígja FIDE í dag. Með því hefur hann tekið forystuna í einvígi þeirra. Í hinum einvígjunum varð jafntefli í öllum skákunum og staðan því jöfn í þeim. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Minningarmótið um Gunnlaug Guðmundsson fer fram nk. sunnudag (8. maí) kl. 13.

Gunnlaugur Guðmundsson var um árabil áberandi í stafsemi SA. Hann gengdi ýmsum stjórnarstörfum í fjölmörg ár og var formaður félagsins í þrjú ár. Gunnlaugur lét ekki staðar numið þar því hann vann einnig þó nokkuð af skákmótum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Ísbjarnasveitin tapaði fyrir svissneskri sveit á EM öldunga

Ísbjarnasveitin íslenska mætti ofjörlum sínum þegar hún tapaði fyrir sveissneskri sveit í morgun. Arnthor gerði jafntefliá fyrsta borði og er því enn taplaus. Einnig gerði Gunnar Finnlaugsson jafntefli.
Eftir þessa viðreign eru ísbirnir í 20 sæti með 5 stig. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Pörun síðustu umferð Skákmóts öðlinga liggur nú fyrir

Pörun síðustu umferðar Skákmóts öðlinga liggur nú fyrir en mikil spenna er í mótinu þar sem 8 skákmenn eiga möguleika á sigri fyrir síðustu umferð! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

3 umferð Áskorendaeinvígja FIDE lauk í dag.

3 umferð 8 manna úrslita áskorendaeinvíga FIDE fór fram í dag í Kazan í Rússlandi. Eins og jafnan áður voru jafntefli í fyrirrúmi en mega menn ekki mísstíga sig. Gelfand vann engu að síður Mamedyarov með hvítu mönnunum og leiðir því einvígi þeirra 2 -1. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Titillaus kínverji að slá í gegn á Meistaramóti einstaklinga í Asíu!

Kínverjinn Lu Shanglei (2473) hefur staðið sig afar vel á mótinu og er frammistaða hans upp á 2602 stig. Hann er með 3,5 v eftir 6 umferðir, með SM allt í kringum sig! Efstu menn eftir 6 umferðir af 9 eru eftirtaldir: Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Spennandi keppni í kvennaflokki á Meistaramóti einstaklinga í Asíu

Keppnin er ekki síður hörð í kvennaflokknum heldur en þeim opna á Asíska meistaramótinu. Hin indverska Karavade og
Munguntuul frá Mongolíu eru með 4,5 v af 6. Síðan kemur mikill pakki á eftir þeim með 4 v. Þar á meðal stigahæsti keppandinn, hin indverska Harika Dronavalli. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Vignir Vatnar var í banastuði á Sumarskákmóti Fjölnis

Rúmlega 30 keppendur tóku þátt í sumarskákmóti Fjölnis sem haldið var við hinar bestu aðstæður í Rimaskóla. “Fjölnisvinurinn” Vignir Vatnar Stefánsson heiðraði Grafarvogsbúa með þátttöku og frábærri frammistöðu. Hann stóð uppi sem sigurvegari með 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Valur og Snorri Már héraðsmeistarar HSÞ 16 ára og yngri

Héraðsmót HSÞí skák í flokki 16 ára og yngri fór fram á Laugum í dag. Sjö keppendur mættu til leiks. þrír í eldri flokki og fjórir í yngri flokki. Valur Heiðar Einarsson gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir, sex að tölu og hreppti þar með titilinn héraðsmeistari HSÞ í skák 2011 16 ára og yngri. Hlynur Snær Viðarsson varð í öðru sæti með 5 vinninga og Snorri Hallgrímsson varð þriðji með 4 vinninga. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Skákþrautir! Mát í 2 er ekkert mál eða…

Hér koma nokkrar skemmtilegar þrautir sem eiga það allar sameiginlegt að menn hafa 2 leiki til að máta. Slíkt ætti ekki að vefjast fyrir neinum eða… Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Ísbirnirnir unnu austurríska sveit í 6 umferð á EM öldunga

Ísbirnirnir unnu austurríska sveit í 6 umferð á EM öldunga. Sigrar unnust á fyrstu 3 borðunum en tap varð á því 4.
Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Kamsky og Gelfand stóðust pressuna.

Kamsky

Kamsky sló Topalov út

Gata Kamsky og Boris Gelfand stóðust pressuna í dag þegar þeir tryggðu sér sæti í undanúrslitum áskorendaeinvígja FIDE. Gelfand gerði jafntefli við Mamedyarov og vann með því 2,5 – 1,5. Mikil reynsla hann gegnum tíðina hefur örugglega haft sitt að segja í þessum einvígjum og verður mjög spennandi að fylgjast með viðureign hans og Kamsky. En þeir mætast einmitt í undanúrslitum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Vignir Vatnar sigraði á Vormóti Skákskólans

Vormót Skákskólans fór fram á sunnudaginn. Mót þetta markar lok framhaldsflokks Skákskólans á hverju ári og er skipað nemendum í þeim flokki. Allir nemendur framhaldsflokks eiga það sameiginlegt að hafa bætt sig töluvert í vetur enda æfingar tvisvar í viku í einn og hálfan tíma í senn. Krakkarnir eru einnig dugleg við að sækja æfingar sinna taflfélaga og nokkur þeirra sækja
tíma Helga Ólafssonar í Kópavogsstúkunni. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Æsispennandi dagur í Áskorendaeinvígjunum!

Eins og síðan spáði fóru bæði Grischuk og Kramnik áfram í undanúrslit en í báðum tilvikum eftir harða og spennandi baráttu. Einnig þurfti að fara í hraðskákir í báðum einvígjum!

Grischuk sigraði Aronian og virtist einfaldlega sterkari á taugum og einnig var Aronian ósannfærandi þegar hann Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram næst komandi föstudag

Úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram föstudagskvöldið, 13. maí. Stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson og Hjörvar Steinn Grétarsson mætast í úrslitum. Að þessu sinni fer einvígið ekki fram í sjónvarpi. Kapparnir tefla í húsnæði Skáksambandsins, Faxafeni 12 og eru áhorfendur velkomnir. Einvígið hefst kl. 19. Einvíginu verður varpað upp á risaskjá í Billiardbarnum sem er hliðina á Skáksambandinu en verður ekki sýnt beint á netinu. Continue reading

Posted in Skákmót | Leave a comment

Fyrsta tapskák Arnthors á EM öldunga kom í 7 umferð

Arnthor Einarsson hefur staðið sig frábærlega vel á EM öldunga. Það var fyrst í dag í 7 umferð sem hann tapaði skák. En þá tapaði íslenska sveitin fyrir belgískri sveit. Belgarnir unnu mjög sannfærandi sigur, 3,5 – 0,5, en aðeins Gunnar Gunnarsson náði jafntefli. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Akiba Rubinstein og pólsk skák

Akiba Rubinstein er án vafa einn að frægustu skákmönnum sögunnar. Hér kemur saga hans í mjög vel gerðum myndböndum: Continue reading

Posted in skáksögumolar | Leave a comment

Birkir Karl Sigurðsson sigraði á lokamóti Lokamót Skákskóla Íslands/Skákakademíu Kópavogs í Stúkunni

Lokamót Kópavogs-verkefnis Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs fór fram í hinum glæsilega sal Stúkunnar á Kópavogsvellinum föstudaginn 6. maí. Bestu og efnilegustu skákmenn Kópavogs hafa sótt þessar æfingar sem Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands hefur haft umsjón með. Gríðarleg aukning hefur verið í skákiðkun barna og unglinga í Kópavogi á þessu starfsári og margir frábærir skákkennarar starfandi við grunnskóla Kópavogs. Má þar nefna Tómas Rasmus, Smára Rafn Teitsson, Lenku Ptacnikovu, Sigurlaugu Friðþjófsdóttur, Gunnar Finnsson og ýmsa fleiri. Skákakademía Kópavogs hefur stutt við starf þessara aðila með ýmsum hætti. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Jón Trausti skákmeistari Rimaskóla 2011

Nýtt nafn verður skráð á skákbikar Rimaskóla eftir að Jón Trausti Harðarson 8-HIH lagði félaga sinn Dag Ragnarsson að velli í tveggja skáka úrslitaeinvígi 1,5 – 0,5. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Landsmótið í skólaskák haldið á Akureyri 12-15. maí 2011

1- 4. umferð verða tefldar í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni v/Skólastíg (gengið inn að vestan), en hinar umferðirnar í Síðuskóla. Gist verður í Síðuskóla. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Ísbjarnarsveitin á EM öldunga gerði jafntefli við englendinga í næst síðustu umferð

Íslenska ísbjarnarsveitin gerði jafntefli við 2 sveit englendinga í áttundu og næst síðustu umferð á EM öldunga. Öllum skákum lauk með jafntefli. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Keppendalistinn á Landsmótinu í skólaskák

Eins og sást í frétt fyrr á síðunni hefst Landsmótið í skólaskák á morgun. Nú liggur keppandalistinn fyrir og má sjá hér. Hægt verður að fylgjast með gangi mála hér á yourchessnes.com/skakfrettir, Chess-Results (endanleg slóð liggur ekki fyrir) og á heimasíðu heimamanna í Skákfélagi Akureyrar. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Þorsteinn Þorsteinsson sigraði á Skákmóti öðlinga

Eftir æsispennandi lokaumferðir stóð Þorsteinn Þorsteinsson uppi sem sigurvegari mótsins! Þorsteinn er vel að sigrinum kominn. Hann telfdi afar vel á mótinu og gaf varla færi á sér. Sigur hans var þó tæpur því að Kristján Guðmundsson og Jón Þorvaldsson urðu jafnir honum með 5,5v af 7 mögulegum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Jafntefli í síðustu umferð á EM öldunga

Íslenska sveitin gerði jafntefli við austurrísku sveitina í 9. og síðustu umferð EM öldungasveita sem fram fór í morgun í Grikklandi. Sveitin hlaut 9 stig og 15 vinninga og endaði með því í 21. sæti. Rússar urðu Evrópumeistarar, Þjóðverjar aðrir og Svartfellingar þriðju. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Hersteinn skákmeistari Glerárskóla

Á skólaskákmóti Glerárskóla sem var háð í síðasta mánuði urðu þeir Hersteinn Heiðarsson og Logi Rúnar Jónsson efstir og jafnir. Sl. þriðjudagskvöld tefldu þeir félagar svo einvígi um skólameistaratitilinn. Eftir að hafa unnið sína skákina hvor tefldu þeir eina bráðabanaskák til úrslita, þar sem hvítur hafði 6 mínútur gegn 5 mínúrum svarts og varð að vinna, en svörtum nægði jafntefli til sigurs. Eftir hlutkesti fékk Hersteinn val um lit og kaus að stýra svörtu mönnunum. Eftir öruggan sigur í eirri skák stóð hann uppi sem sigurvegari í einvíginu. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Landsmótið hófst í dag

Landsmótið í skólaskák hófst í dag en mótið fer fram á Akureyri. Telft er í tveimur flokkum. Eldri flokkurinn er fyrir 8 – 10 bekkur en sá yngri fyrir 1-7 bekk. 12 keppa í hvorum flokki en nokkrir varamenn, þeirra sem höfðu unnið sér sæti, taka þátt í mótinu. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Jafntefli í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna í dag!

Áskorendaeinvígin héldu áfram í dag þegar undanúrslit keppninnar hófust. Í þeim eru telfdar 4 skákir. Ef það dugar ekki til eru telfdar atskákir og svo hraðskák ef enn er jafnt. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Eiríkur efstur á fimmtudagsmóti

Eiríkur K. Björnsson sigraði á jöfnu og sterku fimmtudagsmóti í gær. Trúlega hefur ekki unnist sigur á fimmtudagsmóti í vetur á jafn fáum vinningum, án þess að kæmi til stigaútreiknings. Enginn fór taplaus frá mótinu og úrslit réðust í síðustu umferð en þá töpuðu báðir efstu menn (Eiríkur og Stefán Þór) skákum sínum! Úrslit í Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Bræður í efsta sæti á Landsmótinu í skólaskák eftir 4 umferðir

4 umferðir eru núna búnar á Landsmótinu í Skólaskák. Skákfélag Akureyrar stendur afar vel að framkvæmd mótsins og Páll Sigurðsson er þrautreyndur dómari svo allt er til staðar til að mótið heppnist vel. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Ísland sendir lið í opinn flokk á EM

Samkvæmt frétt á skak.is sendir Ísland lið á EM landsliða í opinn flokk, en það fer fram á Krít 2 – 11 nóvember næstkomandi. Samkvæmt sömu frétt verður liðið valið í ágústbyrjun. Það vekur hins vegar athygli að ekki er orð um að sent verði kvennalandslið á þetta mót sem verður að teljast mjög sérstakt ef svo verður ekki.

Helgi Ólafsson mun velja landslið fyrir EM í ágúst byrjun (skak.is)

Helgi Ólafsson mun velja landslið fyrir EM í ágúst byrjun (skak.is)

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Aftur jafntefli í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna

Báðar skákirnar í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna enduðu með jafntefli. En það var barist í þeim og svartur þurfti í báðum tilvikum að passa sig.  Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Línur farnar að skýrast á Landsmótinu í skólaskák

5 og síðasta umferðin í dag á Landsmótinu í skólaskák var að klárast. Línur eru farnar að koma í baráttuna og virðast 6 ætla að berjast um sigurinn í eldri flokki en fjórir í þeim yngri eins og staðan er núna. Bræður mættust í yngri flokknum og vann Oliver nokkuð sannfærandi sigur þar. Vignir fylgir fast á eftir með 4,5 vinning. Hins Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hjörvar varð Íslandsmeistari í atskák

Hjörvar varð Íslandsmeistari í atskák með sigri á Þresti Þórhallssyni

Hjörvar Steinn Grétarsson varð Íslandsmeistari í atskák með því að leggja Þröst Þórhallsson í einvígi í kvöld. Framlengja þurfti einvígið því að báðar atskákirnar enduðu með jafntefli. En Hjörvar vann hraðskákirnar og þar með titilinn. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Jafntefli eftir jafntefli í Áskorendaeinvígjum FIDE

Keppendur í undanúrslitum Áskorendaeinvígja FIDE er orðnir fastir í jafnteflisgírnum því að allar skákir einvígjanna hafa endað með jafntefli! Á morgun kl. 11.00 hefst lokaumferð undanúrslitanna og ef jafnt er eftir hana verður framlengt með atskákum og síðan verður hraðskák ef enn er jafnt. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Mikael kominn í góða stöðu með að innbyrða Landsmótstitilinn.

Mikael Jóhann Karlsson er kominn með aðra hönd á titilinn eftir góða frammistöðu í dag. Hins vegar mætir hann sínum aðalkeppinauti, Degi Ragnarssyni í síðustu umferð svo hann þarf samt að halda einbeitingunni.
Í yngri flokki er annar norðanmaður efstur, Jón Kristinn Þorgeirsson, en hann leiðir flokkinn með 7,5 vininga af 9 mögulegum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Akureyringar sigurvegarar Landsmótsins í Skólaskák!

Akureyringar urðu mjög sigursælir á Landsmótinu í Skólaskák. Þeirra menn unnu báða flokka. Mikael Jóhann Karlsson vann eldri flokkinn en Jón Kristinn Þorgeirsson þann yngri. SA menn hafa unnið afar gott starf í langan tíma og eru svo sannarlega að uppskera árangur erfiðis síns! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Allar langar skákir undanúrslita Áskorendaeinvígjanna enduðu með jafntefli!

Alla skákirnar í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna hafa endað með jafntefli! Þetta þýðir að nú taka við atskákir og ef það dugar ekki til verða hraðskák látin ráða úrslitum. Framlengin verður kl. 11.00 í fyrramálið. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Nýr liður á yourchessnews.com/skakfrettir!

Frá og með næsta föstudegi munu birtast vikulega á þessari síðu ýmsir skákhlekkir. Bæði hvað snerta þjálfun, sögu, fróðleik, skákmenn eða -félög, bækur, greinar eða í raun hvað sem ber. Fyrsti hlekkurinn kemur næstkomandi föstudag, 20 maí. Og eins og fyrr segir, á hverjum föstudegi eftir það.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hraðskákmót öðlinga fer fram á miðvikudagskvöld

Hraðskákmót öðlinga fer fram á miðvikudagskvöld (18. maí) og hefst kl.19:30. Mótið er opið fyrir alla 40 áraog eldri. Boðið verður upp á stórveislunú enda stór ástæða til þess þar sem öðlingamótið nú var það tuttugasta íröðinni. Bökuð hefur verið sérterta í því tilefni. Þátttökugjölderu kr. 500 og eru veisluföngin innifalin í þátttökugjöldum.

Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrirhraðskákmótið sem og aðalmótið sem lauk síðasta miðvikudagskvöld.

Skákmenn 40+ er hvattir til að fjölmenna!

Posted in Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hvernig á að finna besta leikinn eins fljótt og hægt er!

Hér kemur æfingarmyndband, á ensku, eftir GM Igor Smirnov. Eins og jafnan eru margir þættir sem að menn eru sammála um og aðrir sem menn eru ósammála um. En það er jú ávallt hluti af æfingu finna út hvað hentar manni og hvað ekki. Það er alla vegana hentugt að hafa það í huga þegar þetta myndband er skoðað. Continue reading

Posted in Skákmyndbönd, Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Litlaus einvígi í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna

Gelfand og Grischuk báru sigurorð af þeim Kamsky og Kramnin í undanúrslitum Áskorendaeinvígjanna. Undanúrslitin voru afar tilþrifalítil og vonandi sjást betri tilþrif í úrslita einvígi þeirra félaga. En það byrjar næst komandi fimmtudag.
Lokastaðan í undanúrslitum

Kamsky (USA) – Gelfand (ISR) 4-6
Kramnik (RUS) – Grischuk (RUS) 4½-5½

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hvernig á að undirbúa sig fyrir skákir?

GM Igor Smirnov er hér með myndband um það hvernig best sé að undirbúa sig fyrir skákir. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Jafntefli í fyrstu skák Grischuk og Gelfand

Jafntefli varð í fyrstu skák Grischuk og Gelfand í einvígi þeirra um réttinn til að skora á Anand, ríkjandi heimsmeistara. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Jóhann H Ragnarsson vann hraðskáksmót öðlinga

Jóhann H Ragnarsson var hraðskáksmót öðlinga eftir hörkubaráttu við Þorstein Þorsteinsson. Fyrir síðustu umferð var Jóhann með 7,5 vinninga af 8 mögulegum en Þorstein með 7. Þeir töpðuð hins vegar báðir í síðustu umferð þannig að Jóhann stóð uppi sem sigurvegari en Róbert náði 2 sætinu af Þorsteini á stigum. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Hjörvar Steinn er orðinn FIDE meistari

Hjörvar Steinn Grétarsson var í dag útnefndur FIDE meistari. Það er langt síðan að hann uppfyllti skilyrðin fyrir því og mjög ánægjulegt að þetta sé núna formlega staðfest.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Stefán Þór sigraði örugglega á fimmtudagsmóti

Stefán Þór Sigurjónsson gaf engin grið á fimmtudagsmóti gærdagsins; vann með fullu húsi og var búinn að tryggja sigurinn fyrir síðustu umferð. Að öðru leyti var keppnin býsna jöfn eins og sést á úrslitunum hér að neðan; keppendur, sem nutu góðs af veitingum Birnu frá hraðskákmóti öðlinga frá því kvöldið áður í kaffihléinu, Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Umfjöllun Goðans Jóns Þorvaldssonar á Skákmóti öðlinga

Jón Þorvaldsson, Goðanum, fjallar vel og skemmtilega um Skákmót öðlinga á heimasíðu Goðans. Pistill hans birtist hér á eftir. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Tagged , | Leave a comment

Hlekkur vikunnar; chesstigers

Eins og fyrr hefur komið fram mun síðan birta framvegis á föstudögum kl. 15.00 hlekki vikunnar. Þeir verða á ýmsum tungumálum og fjalla um hin margvíslegustu mál en þó eiga þeir það sameiginlegt að vera ávallt tengdir skákefni af ýmsu tagi. Hér kemur sá fyrsti: Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

2 íslendingar með á First Saturday í juní

2 íslendingar verða með á First Saturday mótinu í júní. En mót með þessu heiti fara fram fyrsta laugardag hvers mánaðar og eru haldin í Ungverjalandi. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Grischuk og Gelfand gerðu aftur jafntefli í úrslitum Áskorendaeinvígjanna

2 skák Gelfand og Grischuk endaði með jafntefli eins og sú fyrsta. Grischuk, sem var með svart, var með undirtökin eins og í fyrstu en jafntefli var sanngjarnt. Mikil undiralda var í skákinni og allt útlit er fyrir afar spennandi fjórar skákir en þeir félagar tefla 6 skákir í einvíginu. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

4 íslendingar keppa á Copenhagen Chess Challenge

Þeir Henrik Danielsen, Þröstur Þórhallsson, Óskar Long Einarsson og Atli Jóhann Leosson sitja nú að tafli í Kaupmannahöfn. Þar fer fram Copenhagen Chess Challenge og eru 5 umferðir búnar. Það er telft þétt því að 2 skákir eru telfdar á dag! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

14 leikja jafntefli hjá Grischuk og Gelfand!

Örjafntefli var hjá þeim Grischuk og Gelfand í 3 skákinni í Áskorendaeinvígjunum. Frá er á morgun en 4 skákin fer fram á mánudag kl. 11.00.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Henrik er í 1-3 sæti þegar 2 umferðir eru eftir á Copenhagen Chess Challange

Henrik Danielsen fékk 1,5 v út úr umferðunum tveimur í dag á Copenhagen Chess Challange. Jafnteflið gerði hann við sænska SM J. Hector. Með þessum úrslitum er Henrik kominn með 5,5 vog er í ´1-3 sæti ásamt Hector og FM Hagen frá Danmörku. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Drottning á móti hrók!

Endatöfl þar sem annar aðilinn hefur drottningu gegn hrók geta alltaf komið upp en það getur verið snúið að vinna þau. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákþjálfun | Leave a comment

Henrik vantaði herslumuninn.

Henrik Danielsen vantaði herslumuninn til að vinna Copenhagen Chess Challange, en síðustu 2 umferðinar fóru fram í dag. Hann gerði jafntefli við sænska SM Stellan Brynell í lokaumferðinni og það kostaði hann sigurinn. Hann endar í 2-5 sæti fyrir vikið með 6,5 vinninga.
Þröstur Þórhallsson fékk einn vinning út úr lokaumferðunum tveimur og endaði í 13 – 21 sæti með 5,5v.
Atli Jóhann Leósson og Óskar Long Einarsson fengu 3 vinninga en þeir fengu báðir einn vinning í dag.

Sigurvegari mótsins var nokkuð óvænt FM Andreas Skytte Hagen frá Danmörku en hann átti feiknalega gott mót. Hann endaði með 7 vinninga og fékk sinn fyrsta stórmeistaraáfanga um leið og hann fékk lokaáfanga sinn að alþjóðlegum titli. Jafnir Henrik í 2-5 sæti voru hinir sænsku SM Jonny Hector og Tikkanen auk hins þekka finna, SM Heikki Westerinen.

Henrik Danielsen endaði í 2-5 sæti (skak.is)

Henrik Danielsen endaði í 2-5 sæti (skak.is)

Heimasíða mótsins

Chess-Results

Posted in Skákfréttir, Skákmót, Uncategorized | Leave a comment

Björn Þorfinnsson er með 1 vinning eftir 2 umferðir á móti á Ítalíu

Björn Þorfinnsson tekur um þessa dagana þátt í alþjóðlegu móti í Alimini á Ítalíu. 2 umferðir eru búnar og er hann með 1 vinning eftir sigur á ítalanum Massimilano Orsi í 1 umferð. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Áskell Örn Kárason bar sigur úr býtum í VII. og síðasta minningarmótinu um Gunnlaug Guðmundsson

VII.og jafnframt síðasta Minningarmótið um Gunnlaug Guðmundsson fór fram í gær. Gunnlaugur Guðmundsson var um árabil áberandi í stafsemi SA. Hann gengdi ýmsum stjórnarstörfum í fjölmörg ár og var formaður félagsins í þrjú ár. Gunnlaugur lét ekki staðar numið þar því hann vann einnig þónokkuð af skákmótum. Fjölskylda Gunnlaugs gaf veglegan farandbikar sem keppt hefur verið um sl. sjö ár. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni sigraði í Firmakeppninni

Úrslitakeppni Firmakeppninnar fór fram í gær. Fjölmörg fyrirtæki skráðu sig til leiks í keppninni og þurfti að skipta þeim niður í fimm riðla sem fóru fram undanfarnar vikur. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Gelfand og Grischuk gerðu aftur örstutt jafntefli!

Gelfand og Grischuk virðast helst stefna að því að gera áhugann virkilega lítinn fyrir úrslita einvígi Áskorendaeinvígjanna því þeir gerðu aftur örstutt jafntefli í 4 skák sinni. Eftir 2 fyrstu skákirnar virtist þetta ætla að verða fjörugt einvígi en síðustu 2 skákir hafa varla verið telfdar! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Tagged | Leave a comment

Björn vann í 3 umferð

Björn Þorfinnsson vann Samuel Tulio Pizzuto í 3 umferð mótsins á Almini á Ítalíu. Hann er því með 2 vinninga í 9 – 17 sæti.

Meðal keppenda má nefna stórmeistanan Oleg Kornev, Igor Glek, Artur Kogan og Fabio Bruno

Heimasíða mótsins

Skákir í beinni

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Svartur mátar í 6 leikjum!


Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Tagged | Leave a comment

Jafntefli í næst síðustu skák Grischuk og Gelfands

Grischuk og Gelfand gerðu 39 leikja jafntefli í næst síðustu skák sinni í úrslitaeinvígi Áskorendaenvígja FIDE. Skákin varð 39 leikir. Þeir mætast í síðustu skákinni á morgun kl. 11.00.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Gelfand er kominn áfram og mætir Anand

Boris Gelfand bar í dag sigurorð af Grischuk í úrslitaeinvígi Áskorendaeinvígja FIDE. Hann lagði Griscuh í 35 leikjum og var sigur hans sanngjarn. Hann mætir því Anand í einvígi um heimsmeistaratitilinn. Gelfand gerði jafntefli í öllum skákum einvígjanna nema 2! Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Meistaramót Skákskóla Íslands hefst á föstudag

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2010/2011 hefst föstudaginn 27. maí. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Stigamót Hellis 1.-3. júní

Stigamót Taflfélagsins Hellis verður haldið í níunda sinn sinn dagana 1.-3. júní nk. Fyrirkomulag mótsins hefur verið mismunandi í gegnum tíðina en að þessu sinni er mótið haldið í kringum uppstigningadaginn þannig að keppendur munu eiga frí helgina á eftir. Góð verðlaun eru í boði á mótinu og mótið er opið öllum. Skráning á mótið er á heimasíðu Hellis: http://www.hellir.blog.is Continue reading

Posted in Skákmenn | Tagged | Leave a comment

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 30. maí kl. 20 í húsnæði félagsins að Faxafeni 12.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórn T.R.

Posted in Skákfréttir | Tagged | Leave a comment

Björn Þorfinnsson er í 11 – 17 sæti eftir 4 umferðir á Ítalíu

Björn Þorfinnsson gerði jafntefli við Maco Codenotti frá Ítalíu í 4 umferð mótsins í Alimini á Ítalíu. Hann er vinningi á eftir efstu mönnum með 2,5 v. En í 1 – 3 sæti eru þeir AM Fabio Bruno, SM Oleg Kornev og Arthus Kogan. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Leave a comment

Björn vann í 6 umferð á Ítalíu

Björn Þorfinnsson vann AMK Tatiana Plachkinova í 6 umferð mótsins á Ítalíu. Hann er því með 3,5 v í 13 – 18 sæti. SM Brunello leiðir mótið með 5 v. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

SM Sinisa Drazic vann Björn Þorfinnsson

Björn Þorfinnsson tapaði fyrir SM Sinisa Drazic í 5 umferð. Hann er því með 2,5 v og er í 18 – 25 sæti. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Nakamura vann Ponomariov 6,5 – 3,5

Nakamura og Ponomariov mættust í einvígi sem fór fram 12 – 25 maí í Saint Louis í Bandaríkjunum. Einvígið var með þeimm hætti að þeir telfdu 6 hefðbundnar skákir og síðan 4 atskákir. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

Björn Þorfinnsson gerði jafntefli við AM Laketic Gojko í 7 umferð

Björn Þorfinnsson gerði jafntefli við AM Laketic Gojko í 7 umferð alþjóðlega mótsins á Ítalíu. Hann er því með 4v í 11 – 18 sæti. SM Brunello leiðir mótið með 5,5v en í 2 – 8 sæti eru SM Lazic, SM Kogan, SM Naumkin, SM Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Leave a comment

Landsmót UMFÍ 50+ á Hvammstunga 24.-26. júní

Landsmót UMFÍ 50 + verður haldið á Hvammstanga helgina 24. – 26. júní. UMFÍ hefur haldið fjölmörg Landsmót í gegnum tíðina. Nú er kominn tími til að þeir sem eru 50 ára og eldri fáið að njóta sín á Landsmóti. Aldrei áður hefur verið haldið Landsmót fyrir 50 ára og eldri því er um stórviðburð að ræða. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Sigurskák Kristján Guðmundssonar gegn Arnari Þorsteinssyni

Kristján Guðmundsson telfdi mjög skemmtilega skák við Arnar Þorsteinsson á hraðskákmóti öðlinga sem fram fór 18 maí. Frábær varnar taflmennska hjá Kristján skilaði virkilega fallegum sigri. Kristján var svo vinsamlegur að skýra skákina út fyrir síðuna og kemur hún hér: Continue reading

Posted in Skákmenn | Leave a comment

Óvænt drottningarfórn

FIDE þjálfarinn og AM, Andrew Martyn fjallar hér um óvænta drottningarfórn og þjálfun er fléttað inn í það. Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Leave a comment

Meiri skákþjálfun frá Andrew Martyn

Hér kemur meiri skákþjálfun frá Andrew Martyn en hann er ávallt með mjög gott efni. Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Leave a comment

Halloween gambíturinn!

Hér fjallar Andrew Martyn um Halloween gambítinn en hann kom ma við sögu í landsliðsflokki á Egilsstöðum! Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Leave a comment

Sjálfstraust og baráttan á miðborðinu

Andrew Martyn er hér með afar gott myndband fyrir skákþjálfun: Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Leave a comment

Magnús Sigurjónsson sigraði á síðasta fimmtudagsmóti vetrarins í Taflfélagi Reykjavíkur

Magnús Sigurjónsson hafði sigur á fimmtudagsmóti í gær. Eini keppandinn sem náði að sigra Magnús var sá yngsti, Vignir Vatnar Stefánsson. Með því náði Vignir líka öðru sætinu en þess má geta að honum voru veitt verðlaun um kvöldið bæði fyrir bestan árangur í sínum aldursflokki á laugardagsæfingum í TR, sem og bestu Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Hlekkur vikunnar!

Eins og jafnan á föstudögum er hlekkur vikunnar valinn. Í þessari viku er það saga skákarinnar sem er í forgrunni! Continue reading

Posted in skáksögumolar | Leave a comment

Shirov vann Lublin Union Memorial

Shirov vann Lublin Union Memorial sem fór fram í Lublin í Póllandi frá 15-21 maí. Shirov fékk 5 vinninga af 7 mögulegum en mótið var skemmtilega skipað. Meðal stig voru 2680 en allir keppendurnir eru á topp 100 listanum.
Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Jón Kristinn sigraði á Coca Cola-mótinu

Hið árlega Coca Cola hraðskákmót SA fór fram í kvöld. Bar þar helst til tíðinda að nýkrýndur íslandsmeistari, Jón Kristinn Þorgeirsson, sigraði „gömlu” mennina af fádæma öryggi, fékk alls 10,5 vinninga af 12 mögulegum og tapaði ekki skák! Þór Már Valtýsson kom næstur með 7 vinninga og Sigurður Eiríksson þriðji með 5 vinninga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Heimspeki og vangaveltur um skákina

Í þessum myndböndum fjalla þekktir skákmenn og skáksérfræðingar um eðli og heimspeki skákarinnar. Auðvitað eru menn stundum sammála og stundum ósammála þeim eins og gengur en þetta eru athyglisverð myndbönd engu að síður. Meðal þeirra sem koma fram eru Karpov, Aronian, Kosteniuk. Continue reading

Posted in Skákmyndbönd | Leave a comment

Líf Susan Polgar

Hér er á ferð afar merkilegur þáttur um líf Susan Polgar. Mjög fróðlegar myndir og skemmtileg myndbrot eru fléttuð inn í umfjöllun um ævi hennar auk þess sem spáð er töluvert í heila hennar! Continue reading

Posted in skáksögumolar | Leave a comment

Magnús Valgeirsson skákmeistari Fljótdalshéraðs

Skákþingi Fljótsdalshéraðs lauk 15. maí með sigri Magnúsar Valgeirssonar. Magnús varð þar með skákmeistari Fljótsdalshéraðs 2011. Hjálmar Jóelsson, sem sigraði í fyrra, lenti nú í neðsta sæti. Sýnir þetta vel hve jafnir þátttakendur eru, eins og reyndar skákstig þeirra gefa til kynna. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Björn Þorfinnsson með jafntefli við franskan AM í 8 umferð

Björn Þorfinnsson gerði jafntefli við AM Claude Adrian í 8 og næst síðustu umferð mótsins á Ítalíu. Hann er nú í 12 – 18 sæti með 4,5 v. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Tíðindalítill aðalfundur SÍ

Aðalfundur Skáksambands Íslands var haldinn í dag og var hann í rólegri kantinum þrátt fyrir nokkrar lagabreytingatillögur. Reyndar vakti það furðu aðalfundarfulltrúa að enginn þeirra sem bar fram lagabreytingu mætti á fundinn, né bað annan fulltrúa að bera hana fram! Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Björn vann í síðustu umferð á Ítalíu

Björn Þorfinnsson vann Igor Glek í síðustu umferð mótsins í Alimini á Ítalíu. Hann fékk því 5,5 vinning og endaði í 6 – 13 sæti. En í styrkleikaröð mótsins var hann númer 15. Hann stendur nánast í stað stigalega séð, lækkar reyndar um 1,5 vinninga en segja má að frammistaða hans sé svipuð og vænta mátti. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Leave a comment

3 efstir á Meistaramóti Skákskóla Íslands

Þrír urðu efstir og jafnir í Meistaramóti Skákskóla Íslands. Þeir fengu allir 5,5 v en með misjöfnum hætti sem verður skýrður betur hér rétt á eftir. Þetta eru þeir Daði Ómarsson, Emil Sigurðsson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Sérstaka athygli vekur góð frammistaða Emils í þessu móti. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Hraðskákmót Hellis fer fram 30. maí

Hraðskákmót Hellis verður haldið mánudaginn 30. maí nk. og hefst það kl. 20.00. Teflt er í Hellisheimilinu, Álfabakka 14a. Heildarverðlaun á mótinu er kr. 16.000. Tefldar verða 7 umferðir 2*5 mínútur. Núverandi hraðskákmeistari Hellis er Davíð Ólafsson. Þetta er í sextánda sinn sem mótið fer fram. Björn Þorfinnsson hefur hampað titlinum oftast eða fjórum sinnum. Verðlaun skiptast svo: Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Norðurlandamót öldunga fer fram í september í Reykjavík

Norðurlandamót öldunga fer fram á Reykjavík, 10-18. september nk. í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Mótið er opið öllum „öldungum“,fæddum 1951 og fyrr og reyndar einnig konum sem fæddar eru 1961 eða fyrr. Gera má ráð fyrir mikilli þátttöku erlendis frá en það er þegar ljóst að allmargir Danir, Norðmenn og Svíar ætla að taka þátt. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Hjörvar hraðskákmeistari Hellis

FIDE-meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2422) varð í kvöld Hraðskákmeistari Hellis í fyrsta sinn. Hjörvar hafði mikla yfirburði á mótinu, fékk 13 vinninga í 14 skákum, tapaði aðeins fyrir Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur, aftur. Gunnar Björnsson (2122) varð annar með 10 vinninga og Þorvarður F. Ólafsson (2174) varð þriðji með 9½ vinning. 24 skákmenn tóku þátt. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Hjörvar Steinn Grétarsson varð skákmeistari Skákskóla Íslands 2011

Aukakeppni þeirra Hjörvars Steins Grétarssonar, Daða Ómarssonar og Emils Sigurðssonar, en þeir urðu allir jafnir í Meistaramóti Skákskóla Íslands, er lokið með sigri Hjörvar Steins. Þeir telfdu einfalda umferð og vann Hjörvar báða andstæðinga sína. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

2 efstir eftir 5 umferðir á Stigamóti Hellis

Þeir Sigurður Daði Sigfússon og Davíð Kjartansson leiða eftir 5 umferð á Stigamóti Hellis en þeir eru með 4,5 vinninga. Einar Hjalti Jensson kemur svo með 4 vinninga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Hlekkur vikunnar

Frábær vefur sem er í raun eins og safn. Sjá hér.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

3 jafnir eftir hörkukeppni á Stigamóti Hellis

Mjög hörð barátta var á Stigamóti Hellir. Eftir æsispennandi keppni urðu úrslit þau að Sigurður Daði Sigfússon, Davíð Kjartansson og Einar Hjalti Jensson urðu jafnir með 5,5 vinninga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

3 íslendingar á First Saturday í Ungverjalandi

Hjörvar Steinn Grétarsson Helli, Daði Ómarsson TR og Nökkvi Sverrisson TV hafa lagst í víking og tefla nú á hinum þekktu First Saturday mótum í Ungverjalandi. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn, Skákmót | Leave a comment

Henrik varð í skiptu 2 sæti í Óðinsvé

Henrik Danielsen hefur undanfarna daga telft í móti í Óðinsvé. 55 skákmenn tóku þátt og var Henrik sá fimmti stigahæsti. Henrik endaði í 2-3 sæti með 6,5 vinninga af 9 en sigurvegari mótsins var svíinn SM Hans Tikkanen með 7,5 v. Svissneski SM Vadim Milov varð jafn Henrik í 2-3 sæti.

Henrik Danielsen endaði í 2-3 sæti

Henrik Danielsen endaði í 2-3 sæti


Heimasíða mótsins

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Skákbox

Skákbox var í umræðunni í vetur eftir mikið einvígi í Laugardalshöll. Það er alltaf gaman að skoða ýmsar hliðar skákarinnar og skákbox er vissulega ein þeirra. Hér má sjá góða skýringu á þessu “fyrirbæri”.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlekkur vikunnar fjallar um Nimzowitsch!

Hlekkur vikunnar er með áhugaverðu efni um Nimzowitsch. Það er vissulega töluvert síðan hann var uppfærður en það skiptir ekki öllu máli. Því þetta ert sögulegt efni og margt mjög áhugavert í þessum hlekk! Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Hjörvar á siglingu

Hjörvar Steinn Grétarsson nýtti sér vel 3 og 4 umferð Fyrsta laugardagsmótsins í Ungverjalandi. Hann fékk 1,5 vinning út úr þeim. Vann þjóðverjann Siedentopf og gerði jafntefli við spánverjann og FM Zwahr. Hann er nú í 3-5 sæti í SM flokknum með 2,5 vinninga. En 10 keppendur eru í þessum flokki. 12 hins vegar í flokkum þeirra Daða og Nökkva. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Jafnteflisdagur í Ungverjalandi!

Daði Ómarsson og Nökkvi Sverrisson gerðu báðir jafntefli í 5 umferð í First Saturday mótinu. Hjörvar sat hins vegar yfir í SM flokknum.

Heimasíða First Saturday-mótsins
Chess-Results

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Viðtal við Anand

Hér er viðtal sem tekið var við Anand eftir hinn sannfærandi sigur hans á Shirov í atskákseinvígi þeirra í Leon. Hann fjallar hér um föðurhlutverkið, svind í skák, áskorendaeinvígi FIDE og fleira. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Einar Hjalti fer á kostum.

Einar Hjalti Jensson (2227) hefur reynst Goðanum drjúgur liðsmaður síðan hann gekk til liðs við félagið haustið 2010. Strax í öndverðu var ljóst að mikill fengur væri í svo öflugum keppnismanni. Síðar kom á daginn að hæfileikar hans nýttust félaginu á fleiri vegu. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Sigeman & Co mótið hófst í dag

Sigeman & Co 2011 hófst í dag. Mótið er 5 umferðir og og klárast 13 juní. start today. Meðalstig keppanda eru 2625 stig. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Góður dagur í Búdapest í dag!

Íslensku keppendunum gekk mjög vel í dag á Fyrsta laugardagsmótinu í Búdapest! Þeir unnu allir sína andstæðinga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót, Uncategorized | Leave a comment

Mjóddarmót Hellis fer fram 25. júní

Mjóddarmót Hellis fer fram laugardaginn 25. júní í göngugötunni í Mjódd. Mótið hefst kl. 14 og er mótið öllum opið. Góð verðlaun í boði. Síðasta ár sigraði Arion banki en fyrir þá tefldi Bragi Þorfinnsson. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Skráning fer fram í síma 866-0116 og á heimasíðu Hellis þegar nær dregur Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Frábær frammistaða Hjörvars í Búdapest!

Hjörvar Steinn tryggði sér, í 7 umferð, sinn fyrsta áfanga að AM áfanga. Það eru 2 umferðir eftir og ef honum tekst að vinna báðar skákirnar sem eftir eru nær hann einnig SM áfanga. Hann hefur telft vel í mótinu og þessi frammistaða er einfaldlega verðskulduð. Hann lét ekki tap í 1 umferð slá sig út af laginu heldur bætti í og hefur uppskorið í samræmi við það. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Kóngamótið hefst að krafti

Það var engin lognmolla yfir 1 umferðinni á Kóngamótinu í Bazna í Rúmeníu. Mótið er afar vel og, ekki síst, skemmtilega skipað. Meðalstigin eru 2757 en keppandalistinn er þannig valinn Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Hjörvar gerði jafntefli í 8 umferð og nær því ekki SM áfanga

Hjörvar Steinn Grétarsson gerði jafntefli í 8 og næst síðustu umferð Lagardagsmótsins í Búdapest. Hann hafði svart gegn SM Vajda frá Rúmeníu. Þar með er ljóst að hann nær ekki SM áfanga en frammistaða hans er engu að síður virkilega góð á þessu móti en hann tryggði sér fyrsta áfangann að AM titli í 7 umferð. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Smári Ólafsson bar sigur úr býtum á 10 mínútna móti

Í gær fór fram 10 mínútna mót hjá félaginu. 13 skákmenn mættu til leiks og tefldu einfalda umferð, allir við alla.

Smári Ólafsson var hlutskarpastur keppenda og vann með 10 vinninga af 12 mögulegum. Ólafur Kristjánsson kom Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Nakamura sá eini sem vann í Kóngamótinu

Nakamura var sá eini sem að vann sína skák í Kóngamótinu. Þar með eru allir keppendur komnir á blað í þessu athyglisverða og væntanlega skemmtilega móti. Úrslit urður eftirfarandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Fide-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon gengur til liðs við Goðann.

Fide-meistarinn Sigurður Daði Sigfússon (2337) er genginn til liðs við Goðann frá SFÍ.
Hann gekk frá félagaskiptunum um helgina. Afar mikill fengur er af komu Sigurðar Daða til liðs við Goðann, enda er hann stigahæsti félagsmaður Goðans og kemur til með að styrkja A-lið Goðans gríðarlega fyrir komandi átök í 2. deild á Íslandsmóti skákfélaga næsta vetur. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

3 urðu efstir og jafnir í Sigeman mótinu í Svíþjóð

SMarnir Wesley, Tikkanen og Giri urðu eftir og jafnir í Sigeman mótinu með 3 vinninga. Mótið var stutt, aðeins 5 umferð og því þarf mjög góða frammistöðu til að rífa sig frá keppinautunum en engum keppandanna tókst það. Þó má benda á góða frammistöðu Tikkanen sem virðist vera í mjög góðu formi þessa mánuðina. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Aleksej, Aleksandrov vann í Orissa

220 keppendur tóku þátt í alþjóðlega mótinu í Orissa í Indlandi en þetta var í 3 skipti sem að það fer fram. Tefldar voru 11 umferðir. Sigurvergar mótsins var SM Aleksei Alexandrov með 9 vinninga. Skammt á eftir honum í 2-3 sæti voru SMarnir Petrosian og Panchanathan með 8,5 vinninga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Nisipeanu lagði Ivanchuk á Kóngamótinu!

Heimamaðurinn Nisipeanu lagði Ivanchuk í 3 umferð Kóngamótsins. Svo sannarlega uppreisn æru hjá honum því byrjunin var búin að vera honum erfið. Með sigrinum kemst hann í 2-5 sæti í þessu skemmtilega og athyglisverða móti. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Skáksagan! Louis Paulsen gegn Paul Morphy

Sögusviðið er New York árið 1857. Louis Paulsen gegn Paul Morphy er skák sem margir telja eina að allra bestu skákum sem telfdar hafa verið. Er það rétt? Dæmi hver fyrir sig, hér skýrir SM Raymond Keene skákina: Continue reading

Posted in skáksögumolar | Leave a comment

Síðustu umferðirnar í Búdapest

Hjörvar Steinn gerði jafntefli við ungverska stórmeistarann Szabo  í lokaumferð SM flokksins í Búdapest. Hann fékk því 6 vinninga og endar í 2 sæti. 
Daði Ómarsson tapaði í næst síðustu umferð gegn hinum bandaríska FM Kislik og Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Minna tefldar byrjanir aðalsmerki 4 umferðar Kóngamótsins

Sjaldgæfar eða minna notaðar byrjanir voru aðalsmerki 4 umferð í Kóngamótinu í Rúmeníu. Jafntefli varð engu að síður í öllum skákanna en á blaðamannafundi eftir umferðina kvörtuðu Karjakin og Radjabov um þreytu eftir Áskorendaeinvígi FIDE í Kasan.
Karjakin komst einmitt ekkert áfram gegn Caro-Kann vörn Carlsen og jafntefli var samið eftir 35 leiki. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Hlekkur vikunnar!

Hlekkur vikunnar er sannkölluð alfræðisíða. Aragrúi af upplýsingum eru á honum. Hlekkur vikunnar er síðan maskeret.com

Posted in Uncategorized | Leave a comment

4 skákir búnar í einvígi SM Movsesian og SM Navara

SM Movsesian og SM Navara tefla þessa dagana 6 skáka einvígi í Prag. 4 skákir eru búnar og er staðan 2,5 – 1,5 fyrir Navara. Engin stutt jafntefli hafa orðið en það voru jafntefli í fyrstu þremur skákunum. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Endatafls æfing

Endataflsþekking er jafnvel orðinn enn mikilvægari en áður vegna hinna nýju tímamarka. Hér kemur góð æfing, hvernig bjargar hvítur sér út úr þessu? Continue reading

Posted in Skákþjálfun | Leave a comment

Seinni hluti viðtalsins við Anand

Hér kemur seinni hluti viðtalsins við Anand en sá fyrri var birtur á þessari síðu fyrir stuttu síðan. Continue reading

Posted in Skákmenn | Leave a comment

Carlsen lagði Ivanchuk á Kóngamótinu

Carlsen lagði Ivanchuk á Kóngamótinu í Rúmeníu, en í dag fór fram 7 umferð. Aðrir gerðu jafntefli svo Carlsen er einn í efsta sæti þegar 3 umferðir eru eftir. Það ber að hrósa Carlsen fyrir frísklega taflmennsku í þess móti. Hann teflir í botn og það er það sem fólk vill sjá. Rétt er að benda fólki á að skoða skákina hans og sjá þá möguleika sem felast í því að tefla endatafl í botn. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Rúnar Sigurpálsson vann í Trékyllisvík

Um helgina fór fram mót með 43 keppendum í Trékyllisvík. Rúnar Sigurpálsson vann með 8,5v af 9. Í öðru sæti varð Jóhann Hjartarsson með 8 og í 3-5 sæti urðu Björn Ívar Karlsson, Róbert Lagerman og Þorvarður Ólafsson.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Jafntefli í öllum skákum 8 umferðar á Kóngsmótinu

Jafntefli varð í öllum skákum 8 umferðar á Kóngsmótinu í dag. Þar með er Carlsen einn efstur þegar 2 umferðir eru eftir. Hann mætir sínum helsta andstæðing, Karjakin í síðustu umferð. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Hraðskákmót á Akureyri á fimmtudaginn

Næstkomandi fimmtudag kl. 20:00 verður haldið hraðskákmót hjá Skákfélagi Akureyrar. Teflt verður í félagsheimili SA í Íþróttahöllinni.

Þátttökugjald er 500 kr. og eru allir velkomnir.

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Mjóddarmót Hellis fer fram á laugardag

Mjóddarmót Hellis fer fram laugardaginn 25. júní í göngugötunni í Mjódd. Mótið hefst kl. 14 og er mótið öllum opið. Góð verðlaun í boði. Síðasta ár sigraði Arion banki en fyrir þá tefldi Bragi Þorfinnsson. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Skráning fer fram í síma 866-0116 og á heimasíðu Hellis: http://hellir.blog.is. Þátttaka er ókeypis! Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Jafntefli hjá Carlsen og Karjakin í síðustu umferð.

Carlsen og Karjakin gerðu jafntefli í síðustu umferð Kóngamótsins. Það þýðir að þeir urðu jafnir í 1-2 sæti en Carlsen telst vera sigurvegari á stigum.
Mótið var virkilega skemmtilegt og vefsíða mótsins með þeim bestu sem boðið er upp á. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Forseti FIDE og geimverur

Mikla athygli á sínum tíma vakti viðtal við forseta FIDE, Kirsan Ilyumzhinov, þar sem hann talaði um vitneskju sína um geimverur. Þetta viðtal fór fram hjá mörgum og því er það sett hér svo menn geti skoðað spekina! Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlekkur vikunnar!

Hlekkur vikunnar er sígildur og skemmtilegt! Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Áskell Örn Kárason sigraði á hraðskákmóti hjá SA

Í kvöld fór fram hraðskákmót hjá Skákfélagi Akureyrar. 11 keppendur létu sjá sig og tefldu einfalda umferð, allir við alla. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Rúnar Sigurpálsson efstur á útiskákmóti Goðans í Vaglaskógi.

Rúnar Sigurpálsson (Mátar) varð efstur á útiskákmóti Goðans sem fram fór í Vaglaskógi í gærkvöld. Rúnar fékk 7 vinninga af 8 mögulegum og tapaði aðeins einni skák, fyrir Jóni Kr þorgeirssynin, sem varð í öðru sæti með 6,5 vinninga. Jakob Sævar Sigurðsson, Smári Sigurðsson og Hlynur Snær Viðarsson urðu jafnir í 3-5 sæti með 5 vinninga hver. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Daði Ómarsson sigraði á Mjóddarmóti Hellis

Taflfélagið Hellir á 20 ára afmæli í dag og vill yourchessnews.com/skakfrettir nota tækifærið og óska Hellismönnum til hamingju með daginn!

Daði Ómarsson sem tefldi fyrir Brúðarkjólaleigu Katrínar, sigraði með 6v í sjö skákum á fjölmennu og vel skipuðu Mjóddarmóti Hellis sem fram fór í 25.6. Í 2.-3. sæti, með 5,5 vinning, urðu Sverrir Þorgeirsson (Nettó) og Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlíðar Þór Hreinsson er genginn í Goðann.

Hlíðar Þór Hreinsson (2180) Ísl (2253 FIDE) hefur tilkynnt félagaskipti úr Haukum í Goðann.

Með komu Hlíðars Þórs Hreinssonar til félagsins, styrkist Goðinn mikið, enda er Hlíðar Þór öflugur skákmaður. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlekkur vikunnar

Hlekkur vikunnar er með fullt af skemmtilegum myndum og teikningum auk meira efnis. Hann má sjá hér.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Viðtal við Korchnoi á Amber 2011

Hér er athyglisvert viðtal sem tekið var við Korchnoi á Amber 2011. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Mótaáætlun SÍ fyrir næsta keppnistímabil er komin

Mótaáætlun SÍ fyrir næsta keppnistímabil er komin út. Hana má sjá hér.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Skáksamband Íslands beitir nýjum aðferðum við val keppenda á barna- og unglingaskákmótum erlendis

Skáksamband Íslands hefur samþykkt nýja reglugerð um þátttöku barna og unglinga á vegum Íslands á alþjóðlegum mótum FIDE og evrópska Skáksambandsins. Ýmislegt er jákvætt í henni en annað sem orkað tvímælis. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Héðinn Steingrímsson í 3 sæti á opnu móti í Hollandi

Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson opnu skákmóti í Hollandi sem fram fór samhliða hollenska meistaramótinu í Boxtel. Héðinn hlaut 6½ vinning og endaði í 3. sæti, hálfum vinningi á eftir SM Yge Visser og AM Manuel Bosboom. Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlekkur vikunnar

Hlekkur vikunnar hefur allt sem byrjendur og fleiri þurfa til að afla sér upplýsinga. Hér er hann.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hjörvar Steinn náði 2 áfanga að AM á móti í Wales.

Hann fékk 6,5 v af 9 mögulegum og endaði í 3-7 sæti. Glæsilegur árangur hjá Hjörvar og vonandi að lokaáfanginn detti fljótlega inn en hann er fyrir löngu kominn með AM styrkleika.
4 aðrir íslendingar tóku þátt í mótinu og varð árangur þeirra sem hér segir:

8.-9. Örn Leó Jóhannsson 6 v.
21.-25. Nökkvi Sverrisson 5 v.
37.-49. Guðmundur Kristinn Lee 4 v.
50.-57. Óskar Long Einarsson og Birkir Karl Sigurðsson 3½ v.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Teflt á Klambratúni!

Dótakassinn á Klambratúni í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur býður borgarbúum upp á þann möguleika að koma og tefla á Klambratúni í sólinni fimmtudaginn
21. júlí, þeim að endurgjaldslausu. Hugmyndin kemur úr Central Park þar sem boðið er upp á steypt borð þar sem fólk getur komið með sína taflmenn og nýtt blíðviðrið í góða hugarleikfimi. Á morgun milli fjögur og sjö verður því hægt að tefla ásamt því að nýta leikföngin og spilin sem Dótakassinn hefur til umráða.

Kíkið á Klambratún á fimmtudaginn milli kl 16.00-19.00!

Dótakassinn á Klambratúni, ÍTR – Frístundamiðstöðin Kampur
Taflfélag Reykjavíkur

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hraðskákkeppni taflfélaga hefst í byrjun ágúst

Hraðskákkeppni taflfélaga, hefst eftir verslunarmannahelgi. Þetta er í sautjánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélagið Hellir er núverandi meistari. Í fyrra var metþátttaka en þá tóku 16 lið þátt og er stefnt að því að bæta það met í ár! Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Karpov genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur!

Fyrrverandi heimsmeistari í skák, Anatoly Karpov er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Hann skipti yfir í félagið í dag og ljóst er að þetta er mikill styrkur fyrir félagið.

Karpov er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur

Karpov er genginn til liðs við Taflfélag Reykjavíkur

Posted in Skákfréttir, Uncategorized | Leave a comment

Haustmót TR 2011

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2011 hefst sunnudaginn 25. september kl.14. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Bolvíkingar sigurvegarar í Hraðskákskeppni taflfélaga eftir sigur á Helli

Taflfélag Bolungarvíkur vann sannfærandi sigur á Helli í úrslitum Hraðskákskeppni taflfélaga. En leikur þeirra fór fram í Hellisheimilinu í kvöld. Lokatölur urðu 42-30 fyrir bolvíkinga. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Sterkir erlendir skákmenn flykkjast í TR

Töluvert hefur verið um félagsskipti erlendra skákmanna í íslensk félög að undanförnu. Straumurinn hefur fyrst og fremst legið í Taflfélag Reykjavíkur en mjög athyglisverðiraflf skákmenn hafa gengið til liðs við félagið. Þeirra þekktastur er án vafa fyrrverandi heimsmeistari, Anatoly Karpov en hann er ekki sá eini sem hefur skipt í félagið. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

Skemmtikvöld TG fór fram í kvöld

Taflfélag Garðabæjar hélt skemmtikvöld í kvöld fyrir sína félagsmenn. Formaður félagsins, Páll Sigurðsson, skýrði frá ferð sinni á mót í Frakklandi í sumar en nokkrir fleiri  TGingar voru með honum í för. Einnig sýndi hann skákir frá mótinu. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Uncategorized | Leave a comment

SM Judit Polgar hefur gengið til liðs við TR

Það er stutt á milli mikilla tíðinda frá Taflfélagi Reykjavíkur því skákdrottningin sjálf, Judit Polgar, hefur gengið til liðs við félagið. Judit er ein frægasta skákkona sögunnar. Hún er eina konan sem að hefur náð á lista yfir 100 stigahæstu skákmenn heims. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

SM Emil Sutovsky hefur bæst í hóp nýrra TRinga

SM Emil Sutovsky hefur bæst í hóp nýrra TRinga. Hann er margreyndur og sterkur skákmaður sem hefur í langan tíma verið í hópi 100 sterkustu skákmanna heims. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

SM Gata Kamsky kominn í herbúðir TR

SM Gata Kamsky er kominn í herbúðir TRinga. Þetta er feiknalega mikill fengur fyrir TR því Gata Kamsky er bæði mjög sterkur skákmaður og mjög reyndur. Hann er sem stendur 10 stigahæsti skákmaður heims.  Kamsky ætti að falla vel inn í lið TRinga og ljóst að það verður spennandi að fylgjast með honum keppa undir TR fánanum. Continue reading

Posted in Skákmót | Leave a comment

Sérkennilegar deilur varðandi félagsskipti leikmanna

Sérkennilegar deilur hafa risið vegna félagsskiptagluggans sem lokaði á miðnætti 16 september. Samkvæmt reglum SÍ varðandi Íslandsmót skákfélaga er lokatími til að skipta um félög 20 fyrir upphaf Íslandsmóts Skákfélaga. SÍ sendi bréf til félaganna í samræmi við það.  Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

FM Jorn Sloth Norðurlandameistari öldunga

Daninn Jorn Sloth varð Norðurlandameistari öldunga í dag þegar hann lagði Ólaf Kristjánsson í spennandi skák. Hann varð jafn finnska stórmeistaranum Rantanen en vann hann á stigum. Friðrik Ólafsson varð í 3 sæti með 6,5 vinninga. FM Malmdim frá Svíþjóð varð jafn honum en lægri á stigum. Athygli vakti þó að Friðrik gerði stutt jafntefli í síðustu umferð en sigur hefði fært hann í 1-3 sæti. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Yfirlit frá formanni Taflfélags Reykjavíkur varðandi vikuna fyrir félagsskiptagluggann

Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, formaður TR hefur tekið saman pistil um vikuna fyrir lokun félags skiptagluggans. En hann lokaði á miðnætti 16 september. Pistillinn  kemur hér á eftir en það má einnig sjá hann á heimasíðu TR. Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur vill heiðra afmæli einvígins

Á næsta ári eru 40 ár liðin síðan að einvígi aldarinnar var haldið. Þetta eru merk tímamót og nauðsynlegt að halda vel upp á þau. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að flytja tillögu um þetta mál á fundi borgarstjórnar á morgun. Tillagan er svo hljóðandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Aðalfundur Hellis fer fram í kvöld

Aðalfundur Hellis fer fram þriðjudaginn 20. september nk. og hefst kl. 20.  Venjuleg aðalfundarstörf eins og yfirferð ársskýrslu og kosning stjórnar.

Félagið hvetur félagsmenn til að fjölmenna

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Viðtal við formann TR, Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur í 18.00 fréttum RUV

Viðtal var í dag í fréttatíma RÚV við formann TR vegna Íslandsmóts Skákfélaga og hins kraftmikla starfs félagsins. Fyrst og fremst var fjallað um komu hinna sterku erlendu skákmanna til Taflfélags Reykjavíkur og hvaða þýðingu það hefur fyrir TR sem og skákina almennt. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Nökkvi Sverrisson sigraði á Hausthraðskákmeistaramóti TV

Nökkvi Sverrisson sigraði á Hausthraðskákmeistaramóti TV í gærkvöldi. Nökkvi fékk 6,5 vinninga af 7 mögulegum en gerði aðeins jafntefli við Daða Stein. Í byrjun móts fór Þórarinn Ingi hamförum og var efstur eftir 5 umferðir en þurfti þá að lúta í gras gegn formanninum. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Inga skákmeistari SSON !

Ingibjörg Edda Birgisdóttir kom, sá og sigraði.

Stórkostlegur árangur hjá Ingu sem er að taka þátt í sínu fyrsta Meistaramóti hjá SSON og hefur tryggt sér meistaratitilinn þegar ein umferð er eftir. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Jón Úlfljótsson sigraði á fimmtudagsmóti

Jón Úlfljótsson sigraði eftir harða baráttu á fimmtudagsmóti í TR í gær. Reyndar urðu þrjú efst og jöfn; misstu öll niður einn vinning (hvert fyrir öðru á víxl) en Jón tók þetta nokkuð örugglega á stigum. Úrslit urðu annars sem hér segir: Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Davíð Kjartansson tryggði sér sæti í Landsliðsflokki

Davíð Kjartansson tryggði sér í kvöld sæti í Landsliðsflokki með 2-0 gegn Halldóri Pálssyni. Mikil barátta var í skákunum en Davíð náði að tryggja sér sigur í þeim báðum.

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

75. Haustmót TR hófst í dag.

 

Haustmót TR  hófst í dag. Styrkleiki mótsins og fjöldi keppenda er í meðallagi. Keppt er í fjórum flokkum, þrír eru lokaðir. En sérstaða mótsins hefur ávallt falist í því að þetta er nánast eina mótið sem keppt er í lokuðum flokkum í öllum styrkleikum og því fá margir keppendur aukna reynslu í því keppnisformi.  Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmót | Leave a comment

EM félagsliða hafið

Fyrsta umferð EM félagsliðs hófst í gær. Tvær sveitir eru frá Íslandi, Hellismenn og Taflfélag. Þær unnu báðar í 1 umferð með 4,5 v gegn 1,5 v. Hellir vann Veleciku og Bolvíkingar unnu Isek Aquamatch S.C.

Sterkustu sveitir mótsin eru eftirfarandi: Continue reading

Posted in Skákfréttir, Skákmenn | Leave a comment

Guðmundur Kjartansson vann Stefán Bergsson

Guðmundur vann Stefán í kvöld.

Guðmundur vann Stefán í kvöld.

Guðmundur Kjartansson vann Stefán Bergsson í síðustu skák 1. umferðar Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur. En skákin fór fram í kvöld. Þar með leiða Guðmundur og Tómas Björnsson A flokkinn eftir 1. umferð.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Íslensku sveitirnar töpuðu báðar í 2. uumferð

Íslensku sveitirnar töpuðu báðar í 2. umferð EM taflfélaga, báðar 5,5 – 1,5. Þær mætast hins vegar í 3. umferð. Úrslit á einstökum borðum urðu sem hér segir:

Continue reading

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hellir og Bolungarvík gerðu jafntefli í 3 umferð

Íslensku liðin mættust í 3 umferð á EM taflfélaga og gerðu 3 - 3 jafntefli.
Úrslit á einstökum borðum urðu eftirfarandi:

Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Karpov mætir í október

Anatolí Karpov frá Rússlandi, fyrrverandi heimsmeistari í skák, kemur til Íslands í byrjun október í tilefni af 111 ára afmæli Taflfélags Reykjavíkur en hann gekk nýlega í félagið. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Fjórum umferðum lokið á Haustmóti TR

4 umferðum er nú lokið á Haustmóti TR. Mótið er haldið við mjög góðar aðstæður og góður andi hefur ríkt á mótsstað. Hörð barátta er í flokkunum en eftir 5 umferð, sem fram fer á miðvikudagskvöld verður gert hlé fram yfir Íslandsmót Skákfélaga.

Í A flokki hafa úrslit orðið þessi eftir 1 umferð: Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

4 – 2 tala dagsins á EM Taflfélaga

Hellismenn og Bolvíkingar unnu 4 -2 sigra í 4 umferð EM Taflfélaga. Bolungarvík vann frakka en Hellismenn hollendinga. Sveitirnar eru nú jafnar í 21-22 sæti. Úrslit á einstökum borðum urðu:

Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Burst hjá Bolvíkingum á EM Taflfélaga

Bolvíkingar rúlluðu yfir andstæðinga sína í 5 umferð EM Taflfélaga. Þeir unnu belgíska sveit 5 – 1 á meðan Hellismenn gerðu jafntefli gegn þýskri sveit 3 – 3. Úrslit á einstökum borðu urðu þessi:

Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Viðtal við Björn Jónsson vegna komu Karpovs

Á Bylgjunni í gær var viðtal við Björn Jónssson, stjórnarmanns í TR, vegna komu TRingsins Karpovs til landsins. Hlýða má á við talið hér.

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Eiríkur Björnsson öruggur sigurvegari á fimmtudagsmóti TR í kvöld

Eiríkur K. Björnsson sigraði nokkuð örugglega (þó hann segi sjálfur frá) á fimmtudagsmóti í TR í gær. Þátttakendur voru ekki ýkja margir, enda Haustmót TR í gangi og tefldu allir við alla. Fyrir síðustu umferð var Eiríkur með fullt hús og þegar búin að tryggja sér sigur en Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Jón Kristinn sigraði á mótaröð SA

Annað mót mótaraðar SA var teflt í kvöldi. Sjö skákmenn mættu til leiks og tefldu tvöfalda umferð. Úrslit urður þessi

1.    Jón Kristinn Þorgeirsson    10 v. af 12 Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Haustmót SA hefst á sunnudag

Haustmót Skákfélags Akureyrar byrjar nú á sunnudaginn og hefst kl. 13. Þá er teflt um meistaratitil félagsins, en mótið er einnig opið utanfélagsmönnum. Telfdar verða að lágmarki 7 umferðir, en fjöldi umferða ræðst af þátttakendafjölda.  Teflt verður á Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Heimasíða Íslandsmóts skákfélaga

Stjórn Skáksambands Íslands hefur sett upp sérstaka heimasíðu fyrir Íslandsmót taflfélaga. Gott framtak sem ber að hrósa. Þar sem verður hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um mótið. Heimasíðan er  hér.

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Óvænt niðurstaða mótsstjórnar Íslandsmóts Skákfélaga!

Í dag kom mótsstjórn Íslandsmóts Skákfélaga saman vegna þess að TV óskaði eftir skoðun hennar á lögmæti leikmanns Goðans,   Stephen Jablon. Forsagan er sú að þrír leikmenn skiptu um félag 17. september, degi eftir að félagsskiptaglugginn lokaði samkvæmt marg ítrekuðu bréfi Skáksambands Íslands. Ljóst má vera að athugunarbeiðni TV manna felur í sér skoðun á lögmæti þessara þriggja manna í keppninni. En til viðbótar Stephen eru það þeir SM Ivan Sokolov og SM Simon Williams. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Dagur sigraði á atkvöldi

Dagur Ragnarsson sigraði örugglega á atkvöldi Hellis sem fram fór 3. október. Dagur fékk 5,5v í sex skákum og var með fullt hús fyrir lokaumferðina og búinn að tryggja sér sigur en leyfði jafntefli í lokaumferðinni gegn Elsu Maríu. Í öðru sæti varð Jóhanna Björg Jóhannsdóttir með 4,5v. Þriðja sætinu náði svo Jón Úlfljótsson með 4v eins og Elsa María Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment

Upphitunarmót TG fyrir Íslandsmót Skákfélaga

TG hitaði upp fyrir Íslandsmót Skákfélaga fimmtudaginn 29. september. Lið félagsins og stuðningsmenn borðuðu saman og síðan voru keppinautar liðsins skoðaðir. Páll Sigurðsson formaður félagsins fór yfir  helstu andstæðinga og þeir ræddir. Eftir það tók svo hluti þeirra sem að viðstaddir voru þátt í skákmóti. Continue reading

Posted in Skákfréttir | Leave a comment